miðvikudagur, apríl 30, 2003

Þá er drottningardeginum lokið, satt best að segja fór hann að mestu fram hjá mér enda ágætt að tjilla á þeim frídögum sem maður fær. Veðrið mætti vera betra en hver hefur ekki gott af smá rigningu svona við og við. Ég virðist þó njóta betra veðurs en þið heima sem þurfið að vaða í slyddu og viðbjóði....... Jæja þetta verður ekki lengra að sinni, ætla að glápa á eina ræmu og fara svo að sofa.............

sunnudagur, apríl 27, 2003

Það er farið að styttast í að maður fari heim þó enn séu rúmir 2 mánuðir þangað til. En það verður örugglega erfitt að fá eitthvað að gera í sumar þar sem ég kem ekki heim fyrr en í júlí. Ég er búinn að vera að leita en það virðist ekki vera mikið í boði þar sem leitað er eftir fólki í vinnu í 2. mánuði í sumar. Vonandi rætist úr þessu áður en að því kemur að maður fer heim svo maður vonar bara það besta. Ég skellti mér út með Halla og Sölva í gær, við kíktum í nokkra bjóra og fengum okkur svo tyrkneska pizzu áður heim var haldið. Veðrið hefði mátt vera betra þar sem það rigndi eins og hellt væri úr fötu en er það eitthvað að stoppa mann. Ég fór á föstudaginn til að tékka á verði á myndavélinni, hún er eitthvað dýrari hérna en ef ég myndi panta hana af netinu. Ég ætla að skoða þetta betur áður en ég kaupi hana svo ég sé ekki að borga meira fyrir hana en ég þarf.

miðvikudagur, apríl 23, 2003

Ég hef verið að spá í þessu afmælis rugli sem er í gangi hérna úti. Allir virðast þurfa að halda upp á afmælið sitt í hvert einasta skipti "hvað er það !!!" Manni er náttúrulega boðið svo maður mætir svona vegna þess hve vel maður er upp alinn og kann ekki við að vera dónalegur og mæta ekki. Það að mæta þíðir að eitthvað verður maður að létta budduna í leiðinni, þetta getur þó oft verið erfitt þar sem ég þekki nú marga sem bjóða mér "EKKI NEITT". Þegar maður finnur svo eitthvað fer maður að spá hvort það sé nógu dýrt ! Eins og það skipti einhverju helv..... máli enda þekkir maður manneskjuna oftast ekki neitt eins og áður hefur komið fram. Svo er annað þegar maður gefur með í gjöf og gjöfin er valin af þeim sem þekkja manneskjuna best velja og maður borgar svo bara sinn hlut. Vá þessi aðferð er algjörlega ÓÞOLANDI vegna þess að þetta fólk er að hugsa um að leggja aðeins inn á sína eigin gjöf með því að velja eitthvað nógu stórt og nógu dýrt. Þetta leiðir til þess að ég sem þekki helv.... ekki skí. þarf að eyða hellings pening til að komast í eitthvað partí þar sem ég þekki engan og þarf að koma með eigið áfengi. Maður hefði nú haldið að maður ætti nú að fá eitthvað að drekka fyrir allan helv... peninginn sem maður eyddi í einhver hálfv... sem maður sér væntanlega ekki aftur(fyrr en hann býður manni í afmælið sitt árið eftir). Mér finnst að setja ætti einfaldar reglur um svona afmælisboð, þær ættu að vera þessar.
1. Þú mátt halda upp á afmælið þitt á hverju ári þangað til að þú hefur náð 12 ára aldri, eftir það aðeins á hálfum og heilum tug.
2. Ef þú heldur upp á afmælið þitt á hverju ári eftir 20 ára aldurinn þá skalt þú gefa allt það áfengi sem gestir þínir geta torgað. Einnig skaltu segja fólki að ef það komi eigi það ekki að koma með gjafir en ef það vill koma með eitthvað megi það ekki kosta meira en 199 krónur.
3. Þegar löglega er haldið upp á afmæli s.s. á heilum og hálfum tug gildir regla 2. en gestir verða að átta sig á því að ef það kemur þá skal það koma með eitthvað í dýrari kantinum enda búið að drekka frá þér síðust 4. ár frítt(Reyndar mæli ég með 199 Kr. reglunni hérna líka enda kostar gjöf á hverju ári andsk... mikið þegar upp er staðið). Ef þú ert manneskjan sem ferð eftir reglunum áttu líka skilið að fá eitthvað í dýrari kantinum enda ekki eins og vinir þínir hafi eitthvað verið að baða þig í gjöfum síðustu 4.ár.
4. EKKI bjóða bara ÖLLUM í afmælið þitt, þetta er ekki réttlætanlegt fyrir greyin sem ekki þekkja þig né vini þína að ráði. Þegar þeir svo koma í afmælið þitt komast þeir að því að þú ert hundleiðinleg(ur) og átt ömurlega vini. Ef þú aftur á móti ákveður að hunsa þessa reglu þá er hér regla fyrir það. 4b. Sá sem þekkir þig lítið sem ekkert þarf ekki að gefa þér neitt fyrr en hann hefur fundið út hvort þú og þínir séu hans crowd eða ekki. 4c. Þú getur ekki hent manneskjunni út þegar hann eða hún hefur ákveðið að þú og allir þínir vinir séu pakk og engin gjöf er gefin og hann (hún) hefur ákveðið að drekka allt sem hann (hún) nær í enda á allt að vera frítt.
5. Þetta er ekki beint regla en meira svona ábending, vertu alltaf með það á hreinu hvað allt kostar sem þú færð frá vinum þínum kostar. Það getur nefnilega verið auðvelt að láta líta út fyrir að talsverðum fjármunum hafi verið eytt þó svo hafi ekki verið.
PS. Mundu svo að halda ALLTAF upp á afmælið þitt þegar reglurnar leyfa enda verður þú að reyna að fá eitthvað til baka frá síhaldandiafmælifólksemþúþekkirogþekkirekkineitt.
Jæja þetta var nú bara svona nett pæling, er farinn að sofa enda þarf ég að mæta snemma í skólann eða kl 10:50 ehmmm.

föstudagur, apríl 18, 2003

Þetta er nú alveg með ólíkindum, ég er varla búinn að klára að segja frá því hvað veðrið er frábært hérna þegar veðurspánni er breytt. Svo virðist sem ég fái íslenskt veður eftir allta saman þar sem spáð er rigningu og 8 - 12 stiga hita um helgina.

miðvikudagur, apríl 16, 2003

Jæja það fer að líða að því að gestur númer 300 láti sjá sig á síðunni. Þó nokkrir hafa skrifað í dagbókina sem er ekkert nema gott en færri hafa sett sig inn á guest mappið. En þó eru þar Kristrún og Stinni sem virðast hafa rambað á hvernig það virkar :) til hamingju með það. Það er enn þá sami skíta hitinn hérna um og yfir 25 gráður, máður saknar þess eiginlega að hafa ekki bara venjulegt íslenskt veður. Það er ekki skemmtilegt til þess að hugsa að þurfa að hanga inni heilu og hálfu dagana í skólanum þegar hitinn fer yfir 25 gráðurnar. En kanski væri maður vælandi yfir því hve kalt er heima ef maður væri þar ! Ég fékk þessa fínu sendingu í gær, nokkur kíló af sælgæti, harðfiski og svo eitthvað af VÍTAMÍNUM. Svei mér þá þetta var svo mikið af sykri í pakkanum að sendillinn fitnaði um 3 kíló og þarf að fara til tannlæknis bráðlega. Það er annars alltaf gott að fá harðfisk enda liggur maður á honum eins og ormur á gulli

þriðjudagur, apríl 15, 2003

Það er ekkert lát á þessu góða veðri svo það er spurning hvort maður skelli sér ekki út til að brenna smá lit í kroppinn. Ég er búinn að komast að því að ég kemst ekki á hátíð á Höfn þetta árið þar sem skólinn klárast ekki fyrr en 11. júlí. Menn geta því andað léttar og hætt að velta því fyrir sér hvort ég komi eða ekki. Það hefði nú verið andsk.... gaman að fara á hátíðina enþað verður að bíða betri tíma. Nú af fréttum, eldur kom upp í herbergi 50 í De Meyboom um klukkan 21 í gærkvöldi. Reyndar ekki svo mikill eldur frekar svona reykur þar sem kveiknaði í plastblómapotti sem gaf frá sér duglega af reyk. Engann sakaði en slökkvilið Eindhoven brást (skjótt) við og kom eftir 30 mínútur. Þetta var reyndar allt svolítið fyndið, ég sem var á leiðinni á kamarinn finn þessa brunalykt og fer að spyrja fólk hvort það sé að brenna eitthvað. Það kom svo í ljós að brunalyktin kom úr herbergi Kikos, en hann hafði farið út með Itai. Þar sem ekki náðist í Kiko strax var ákveðið að tala við húsvörðinn til að fá lykil til að opna og sjá hvað væri krauma í herberginu. En nei auðvitað mátti ekki nota lykilinn til að opna hurðina hjá honum þar sem Kiko var ekki á staðnum! Svo við reyndum áfram að reyna að ná í Kiko sem tókst á endanum og hann kom á undan slökkviliðinu. Sem betur fer var þetta ekki alvarlegt en það hefði geta orðið það útaf heimskulegum Hollendingum sem eru svo uppteknir að því að fylgja reglum að þeir hafa ekkert sem gæti kallast sjálfstæð hugsun.

mánudagur, apríl 14, 2003

Jæja þá er maður loksins kominn á ról eftir heimkomuna frá MILAN. Ferðin til Milan var bara nokkuð vel heppnuð ef ferðin til og frá Milan er undanskilin. Ég ætla mér aldrei aftur í 14 klukkutíma rútuferð, jesús minn þvílík pína. Það að ferðast á nóttunni og geta ekki sofið er hreinlega ömurlegt, það er akkurat ekkert að sjá. Á leiðinni til Milan eru meira en 20 göng þó mismunandi löng, þau lengstu 17 KM. Dagurinn í Milan leið mjög svipað alla dagana s.s. voðalega mikið gengið á milli sýninga milli þess að villast aðeins. Það var reyndar svolítið pirrandi að geta ekki fengið neitt að éta nema Mc Donalds og Burger King á daginn :( Veitingastaðir í Milan opna ekki fyrr en klukkan 7. Ferðin sjálf var nú samt alveg rútuferðarinnar virði en samt gott að vera kominn aftur til Einhauss.

sunnudagur, apríl 06, 2003

Maður er orðinn hálf dofinn út af þessu fríi, ekkert að gera og ekkert gert nema að spila CM4 og glápa á TíVí, en það er nú í lagi að njóta þess aðeins að vera í fríi. Ég ætla að fara taka til í rottuholunni minni og setja kanski í eins og eina vél svo maður hafi nú eitthvað hreint fyrir Milan-ferðina.

fimmtudagur, apríl 03, 2003

Skíta veður í Einhaus síðustu 3 daga, slydda og viðbjóður en samt svolítið notalegt að fá eitthvað íslenskt hingað. Borgaði mínar 215 evrur fyrir Milano-ferðina svo ég kemst örugglega með ! Ég hef reyndar aldrei komið til Ítalíu svo þetta verður vonandi ekkert annað en gaman. Rútuferðin tekur 12 tíma svo maður verður víst að taka með sér einhverja afþreyingu svo maður deyji ekki úr leiðindum á leiðinni. Ég leigði bíl í dag til að koma draslinu mínu heim úr skólanum enda ekki hægt að vera að burðast með þetta í bössinum. Svo nú hef ég helmingi meira drasl í herberginu en áður og ekki var á bætandi svo einhver tiltekt verður að vera á næstunni.

þriðjudagur, apríl 01, 2003

Önnin loksins búin og 3. vikna frí framundan, sem verður nýtt til að hlaða batteríin og skella sér til Milan. Skrýtið að hafa allt í einu ekkert að gera nema hanga og chilla, ekki að það sé eitthvað slæmt. En þó að önninni sé í raun lokið er eftir final presentation þar sem maður sýnir allt það sem maður hefur gert yfir önnina. Jæja ekki meira um skólann í bili........ Það fer að styttast í að gestur númer 200 láti sjá sig á síðunni minni, sem er alveg ágætt miðað við að það er nú ekki mikið að sjá þar :) Ég vildi reyndar að fleiri myndu skrifa í gestabókina þar sem það er nú alltaf gaman að vita hverjir leggja leið sína inn á síðuna. Svo ef þú ert ein(n) af þeim sem kíkir inn en skrifar ekki í hana þætti mér vænt um að þú gerðir svo næst. Var að lesa á horn.is (síðan sem ég fer inn á á hverjum degi) að þeir séu hættir með umræðuna. Það er synd að alltaf skulu vera einhverjir einstaklingar sem geta ekki hagað sér almennilega og skemma annars skemmtilegan vettvang fyrir skoðanaskipti. Ég vona bara að umræðan komi upp aftur hvenær sem það nú verður. En annað sem mér þótti nokkuð svo merkilegt og var það hugmyndin um að flytja einn skerminn á Stokksnesi til Hafnar og nýta hann til tónleikahalds og aðrar uppákomur. Ég hefði þó frekar viljað sjá þennan skerm standandi þar sem hann var en fyrst að það er ekki inni í myndinni finnst mér þessi hugmynd hrein snilld. Það er þó alltaf gaman að sjá skemmtilegar hugmyndir sem þessa verða að veruleika. Svona í lokin ætla ég að minnast á veðrið hérna, það var ekki sem best í dag 16 stiga hiti og rigning.