fimmtudagur, desember 25, 2003

Það er ansi langt síðan að maður skrifaði eitthvað hérna. Ástæðan kannski sú að maður hefur verið upptekinn af því að gera sem minnst eftir komuna heim. Maður er búinn að háma sig einhver KÍlÓ af konfekti sem verður verðugt verkefni að ná af sér aftur. Ég verð að segja að jólin hafa bara verið nokkuð góð hingað til og býst ég ekki við því að einhver breyting verði þar á.

þriðjudagur, desember 09, 2003

Jaeja núna er madur bara ad hanga upp í skóla enda eru prófsýni í dag. Annars er bara allt fínt ad frétta hédan úr Einhaus thegar adeins 3 dagar eru til heimferdar :)

miðvikudagur, desember 03, 2003

Kominn miðvikudagur og hressilega farið að styttast í að maður fljúgi heim í jólafrí. Lítið búið að vera að gera hjá mér nema að ég er að hjálpa Uri að klára sín verkefni. Það var kalt í Einhaus í dag en maður er svo mikill víkingur að maður lét það ekki á sig fá frekar en fyrri daginn.