laugardagur, ágúst 21, 2004

Jæja þá er menningarnótt að komast í banka minninganna og ekkert nema gott um það að segja. Ég fór seint niður í bæ eins og venjulega á menningarnótt aðeins til þess að fá að vita að kortinu mínu væri SYNJAÐ þannig að mín MENNINGARNÓTT endaði fyrr en mig hafði grunað. Eftir þessa synjun sem kom flatt upp á mig rölti ég heim niðurlútir enda mín drykkja ekki meiri þetta kvöldið. Kannski getur maður þakkað fyrir að ekki tókst betur til en þetta þar sem drykkja á kvöldi sem þessu getur verið ótæpileg með þeim fylgikvillum sem því fylgir. En núna hugsar maður um þá þúsara sem sparast hafa og maður glottir út i annað enda lítið annað hægt þegar bankarnir vilja ekki gefa manni meira fé en orðið er :)

miðvikudagur, ágúst 18, 2004

Maður gæti nú haldið að margt íslendings hjartað hafi tekið nokkur auka slög í gærkvöldi þegar íslenska landsliðið vann það ítalska 2:0. Reyndar unnu okkar menn í handboltanum sinn fyrsta leik á ólympíuleikunum í gærmorgun svona rétt til að gefa tóninn.
>
Eiður átti góðan leik í gærkvöldi eins og allt íslenska liðið
Búinn að setja inn slatta af nýjum myndum inn á myndasíðuna mína.

miðvikudagur, ágúst 11, 2004

Jæja kominn heim eftir mjög vel heppnaða tónleika 50 Cent í Laugardagshöll.
50 Cent
Centarinn steig á svið um 10 og lék við hvern sinn fingur ásamt Lloyd Banks og Young Buck úr G-Unit. Stóðu þeir félagar svo fyrir fínni skemmtun næstu 90 mín.

mánudagur, ágúst 09, 2004

Síðustu 2 dagar hafa verið hálf ömurlegir þar sem maður hefur bara hangið heima hóstandi með óstöðvandi nefrennsli. það er vonandi að manni fari nú að batna vegna þess góða veðurs sem spáð er. Þíðir ekkert að hanga inni með einhverja flensu ef hitinn fer yfir 20 stig.

sunnudagur, ágúst 08, 2004

Djöfull er nú orðið langt síðan að maður ritaði eitthvað hérna. Jæja, skellti mér út í gær sem kannski er ekki frásögum færandi nema að ég hitti Danna sem ég hef ekki hitt í nokkur ár, ég segi nú ekki annað en svona pakk nennir maður nú ekki að þekkja. Vonandi hitti ég hann ekki aftur í bráð þar sem merkilegheitin eru alveg að fara með þetta grey sem gat ekki farið á fyllerí í gamla daga nema að fá áfengi, föt og peninga að láni. Well 4 drullukökur handa þér Danni.