laugardagur, janúar 01, 2005
Jæja þá er 2005 gengið í garð og ekkert sem maður gert nema að taka því. En síðasta kvöldi 2004 var eitt heima á Rauðarárstígnum þar sem Kristrún galdraði fram lambalundir með öllu tilheyrandi. Reyndar var ætlunin svo að fá eitthvað af fólki í teiti og fara síðan niður í bæ. En auðvitað var það náttúrulega bara einhver óskhyggja að halda að einhvern nennti því. En á endanum komu nú reyndar 3. manneskjur í þetta svokallaða teiti svo þetta var ekki alveg misheppnað. Eftir frekar rólega drykkju var svo haldið á Vegamót til að halda upp á þennan stórviðburð sem áramótin teljast. Þar var fínasta stemmning og allir í fíling, ég var reyndar eitthvað hálf utan við mig og hélt að ég hefði týnt 20 evru seðli sem ég var með í veskinu. Ég hóf dauðaleit af seðlinum á gólfunum fyrir framan barina, sú leit bar þann árangur að ég fann 1000 kall en engan 20 evru seðil. Jæja ég hugsaði með mér að það væri nú sárabót og hætti að hugsa um þetta en svo þegar ég kíkti í veskið mitt í dag blasa þá ekki þessar dýrmætu 20 evrur við mér. Svona getur þetta verið, þessi þúsari sem ég fann var svo notaður við að greiða eina heita böku frá Dominos sem rann greiðlega niður.
Gerast áskrifandi að:
Ummæli (Atom)