föstudagur, maí 30, 2003

Var vaknaður snemma í dag og náði loksins í pakkann sem mamma sendi mér, sem var fullur að harðfiski og öðru gotteríi. Eftir hádegi þá skellti ég mér til Utrecht með Kiko til að hitta Sölvester og Itai. Veðrið lék við okkur og var hitinn í kringum 30 stig sem er eiginlega of mikið fyrir mig þar sem ég gerði lítið annað en að svitna. Partýið sem Ernst ætlaði að halda verður ekki svo ég verð bara heima og tjilla og geri jafnvel einhverja heimavinnu, kannksi að maður opni eins og einn harðfiskspoka :)

miðvikudagur, maí 28, 2003

Nú er maður kominn í 4. daga helgarfrí, ekki slæmt það og spáin er 27 stiga hiti og heiðskírt á morgun jibbí. Ég kíkti á fréttir áður en ég fór í skólann í dag og sá þá í leiðinni að einhver hafði verið að tjá sig á MSN-inu. Greyið kallinn eitthvað ósáttur við sms-ið sem ég sendi honum á laugardaginn. Það getur verið ágætt að hrissta aðeins upp í þessum svokölluðu vinum af og til bara svona til að minna á sig.

sunnudagur, maí 25, 2003

Úffffff vaknaði um klukkan 1. hálf ógeðslegur enda Eurovision í gær. Við héldum okkar Eurovision-partý hérna á Meyboom, það var fín stemmning í hópnum sem taldi 7 manns. En hérna voru Sölvi, Halli, Tinna, Thomasine (Svíþjóð), Jean Pierre (Suður-Afríka) og svo Michal (Ísrael). Þetta var bara hin besta skemmtun og stigunum sem Ísland fékk fagnað innilega og með tilburðum. Tinna kom með helling af snakki og öðru meðlæti en Halli sá um bjórinn. Eftir skemmtilega keppni skelltum við okkur í bæinn þar sem stefnan var tekin á Effenar. Effenar var reyndar ekkert spes en hvað um það ................

þriðjudagur, maí 20, 2003

Kristrún var eitthvað að tjá sig á MSN-inu að það væri ekki Raggi sem væri í haldi lögreglunnar heldur einhver rauðhærður fyrrverandi starfsmaður Júlla. Einnig sagði hún að Júlli væri búinn að opna aftur svo þetta mál virðist ekki vera neitt of alvarlegt fyrir Júlla.
Það er bara allt að gerast í ghettoinu á Rauðarárstígnum. Eftir húsleit í sjoppunni Draumnum hefur Júlla og Ragga verið stungið inn og bíða þeir eftir að verða yfirheyrðir. Feðgarnir eru grunaðir um sölu á áfengi og eiturlyfjum sem kannski kemur ekki svo mikið á óvart. Það er frekar það hversu lengi menn voru að gera eitthvað í málinu sem kemur á óvart enda Júlli búinn að þverbrjóta flestar ef ekki allar þær reglum sem til eru yfir rekstur söluturns. Það verður fróðlegt að fylgjast með því hvernig þetta mál fer og hvort að Draumnum verði endanlega lokað. Þessir atburðir munu væntanlega gleðja marga sem búa nærri Draumnum enda mikið af ógæfuliði sem þar hefur hangið í gegnum tíðina. En við skulum bíða og sjá .............

sunnudagur, maí 18, 2003

Alltaf þegar maður heldur að maður hafi séð allt kemur eitthvað á óvart. Ég var að horfa á sjónvarpið áðan og þar var kona sem sagðist geta talað við ketti. Hún sagði einnig frá því að einhver köttur í New York hafi sagt henni að kettir kæmu utan úr geimnum til að bera út boðskap um hreinlæti .......... Djöfull getur fólk verið steikt.
Alltaf þegar maður heldur að maður hafi séð allt kemur eitthvað á óvart. Ég var að horfa á sjónvarpið áðan og þar var kona sem sagðist geta talað við ketti. Hún sagði einnig frá því að einhver köttur í New York hafi sagt henni að kettir kæmu utan úr geimnum til að bera út boðskap um hreinlæti .......... Djöfull getur fólk verið steikt.

fimmtudagur, maí 15, 2003

Það virðist sem flestir póstarnir sem eru hérna inni séu ekkert of innihaldsríkir og það verður víst engin breyting þar á í þetta sinn. Það hefur heldur kólnað hér í Einhaus og síðustu daga hefur hitinn ekki náð 20° en það er alltaf jafn gaman að röfla yfir veðrinu. Ég held að Íslendingar séu aldrei ánægðir með veðrið, það er alltaf of kalt, of heitt, of þurrt eða of blautt. Ég sá að gaurarnir í í svörtum fötum verða að spila á hátíð á Höfn en það sem ég kemst ekki á hátíðina þetta árið missi ég af þeim viðburði ásamt öllu öðru sem fer fram á hátíðinni. Það er hálf svekkjandi að komast ekki á hátíðina enda búinn að fara austur eða vera fyrir austan síðan hátíðin var haldin fyrst.

sunnudagur, maí 11, 2003

Góðan dag !! Væntanlega eru flestir sem ég þekki búnir að vera að borga tollinn af óhemju mikilli drykkju næturinnar. Fyrir ykkur sem veikust hafa verið og kannksi ælt einu sinni eða oftar, verið með höfuðverk og svima "GOTT Á YKKUR". Kosningarnar fóru nú mest framhjá mér fyrir utan það sem ég sá á netinu þar sem rúv var með beina útsendingu. Reyndar kom það mér nokkuð á óvart hversu góð útsendingin var. Dagurinn í dag búinn að vera hálf leiðinlegur enda nóg að gera fyrir morgundaginn.

laugardagur, maí 10, 2003

Jæja bara kosningar og læti heima í dag :) Ég skellti mér út með Sölvester og fleirum í gær en var kominn heim um 2. svo þetta var stutt gaman. Ég vaknaði um 1. leitið í dag og er búinn að vera að glápa á golf á BBC.

fimmtudagur, maí 08, 2003

Ekki mikið að gerast í Einhaus í dag fimmtudag nema kannski að gleðskapur var haldinn á fyrstu hæð De Meyboom fyrr í kvöld. Ég hef þó engar fréttir af þeim atburði þar sem ég tók ekki þátt í honum enda helgin framundan og skóli á morgun. Annars átti að vera langur dagur í skólanum í dag en þar sem einn af kennurunum var í ameríku styttist skóladagurinn heilmikið. Það að kennararnir séu ekki á staðnum og tímar eru sífellt að falla niður veldur því að það er eins og að skólinn sé ekki byrjaður, maður er ekkert kominn í þennan skóla-fílíng enn þá. Leit inn á horn.is áðan, það virðist vera voðalega lítið að gerast þar núna eftir að umræðan var tekin út. Mér fannst umræðan alltaf svolítið skondin og gaman að því að taka þátt í henni og fylgjast með bæjarsálinni.

þriðjudagur, maí 06, 2003

Ég flaug á hausinn í morgun þegar ég eins og alltaf hjólaði í skólan, afturbrettið losnaði og læsti afturdekkinu sem varð til þess að ég rann á hausinn. Ég var svo smá stund að losa brettið áður en ég gat haldið áfram en ég komst frá fallinu án nokkurra meiðsla :) Stofnaði bankareikning í dag svo ég geti sýnt útlendingaeftirlitinu að ég eigi nægan pening til að stunda nám hérna. Ég fer þá vonandi að fá skilríkin frá þeim svo maður verði sona EINN af Hollendingunum.

mánudagur, maí 05, 2003

Ég var að horfa á sjónvarpið í gær og þar sá ég einhvern mexíkana sem var með auka fót sem stóð út úr öklanum á honum. Hann hefði getað orðið rosalegur tæklari sá en því miður lét hann taka aukafótinn af. Er að fara í tíma hjá otrinum á morgun en hann kennir arkitektúr, ég veit ekki alveg hvort ég er að fíla hann sem kennara. Mér finnst alltaf lítið til þess koma ef kennarar eru svo uppteknir að sýna manni það sem þeir hafa gert að maður kynnist litlu öðru. Það væri kannski í lagi ef menn væru að gera eitthvað áhugavert en þessi er bara ekkert að gera neitt sem gæti verið áhugavert.

sunnudagur, maí 04, 2003

Ég rambaði inn á síðuna hans Bjarna golfara í gær og ég verð að segja að margar af myndunum þar eru ansi góðar. Úr einu í annað, Eftir að horfa á Arsenal drulla á sig gegn Leeds fór ég að spá í því hver er með ljótasta fagnið í enska boltanum. Ég held að Alan Shearer beri höfuð yfir herðar yfir aðra ömurlega fagnara en sá þjálfari sem er í svipuðum standard er tyggjóskrímslið Alex Ferguson. Ég hef reyndar allt of lítið fylgst með enska boltanum í vetur en maður reynir að vera betur með á nótunum næstu leiktíð. Ekki að maður hafi misst af einhverju þar sem Liverpool hefur ekkert verið að standa sig neitt allt of vel.

laugardagur, maí 03, 2003

Fór í dag til að kaupa myndavélina en hætti við vegna þess að ef ég kaupi hana innan við mánuði áður en ég fer heim í sumar get ég fengið hana tax free. Það munar nú um 19% af 620 evrum svona á þessum síðustu og verstu tímum, þannig að einhver bið verður í að ég setji inn nýjar myndir :(

fimmtudagur, maí 01, 2003

Kominn heim eftir langan dag í skólanum. Gaman að segja frá því að ég sá eitthvað af rollum á leiðinni í skólann, ekki það sem maður á von á hérna í Einhaus. Það virðist sem rollurnar séu notaðar eins og sláttuvélar þar sem þær eru fluttar á milli túna reglulega, það kæmi reyndar ekkert á óvart þar sem Hollendingar eru óhemju latt fólk. Talandi um rollur þá verð ég að segja að íslensku rollurnar eru nú fallegri hvað sem menn nú lesa úr því. Kanski að menn heima ættu að skoða þennan möguleika til að spara smá pening og lífga aðeins upp á bæjarlífið. Menn gætu jafnvel fengið sér eina eða tvær í garðinn, fínt að hafa grillkjötið trítlandi um garðinn og sleppa við að þurfa að slá blettinn.