fimmtudagur, maí 08, 2003

Ekki mikið að gerast í Einhaus í dag fimmtudag nema kannski að gleðskapur var haldinn á fyrstu hæð De Meyboom fyrr í kvöld. Ég hef þó engar fréttir af þeim atburði þar sem ég tók ekki þátt í honum enda helgin framundan og skóli á morgun. Annars átti að vera langur dagur í skólanum í dag en þar sem einn af kennurunum var í ameríku styttist skóladagurinn heilmikið. Það að kennararnir séu ekki á staðnum og tímar eru sífellt að falla niður veldur því að það er eins og að skólinn sé ekki byrjaður, maður er ekkert kominn í þennan skóla-fílíng enn þá. Leit inn á horn.is áðan, það virðist vera voðalega lítið að gerast þar núna eftir að umræðan var tekin út. Mér fannst umræðan alltaf svolítið skondin og gaman að því að taka þátt í henni og fylgjast með bæjarsálinni.

Engin ummæli: