04.04.04
Nú er að vera vika liðin síðan maður kláraði skólann í bili og er maður kominn í 3. vikna frí. Ég náði modulinu sem ég var í svo fríið verður mun ánægjulegra en ella vegna þess, Kristrún er einnig í heimsókn sem er svona rúsínan í pylsuendanum. Ég setti inn myndir af dótinu sem ég gerði þessa önnina inn í myndir ef einhver hefur áhuga á því.
10.03.2004
Þá er maður kominn aftur til Einhauss eftir góða ferð til Frakklands. Ég vil byrja á því að þakka þeim sem tóku þátt í að svara spurningunum sem ég setti inn á gestabókina. Það er svo líka annað að ég er nokkuð viss um að ég setti inn tilkynningu frekar en smáauglýsingu á Horn.is svo að þeir á Horninu fá þakkir fyrir að birta þetta sem smáauglýsingu. Þeir sem komið hafa á síðuna hafa komist að þeirri niðurstöðu að best sé að borða heima hjá sér, ef ekki þá sé best að fara á KAFFI HORNIÐ enda þar úrvals kokkur til staðar.
03.03.2004
Setti inn tilkynningu á Horn.is til að fá sjómenn á Hornafirði til að svara nokkrum spurningum varðandi öryggisbúnað. Ekki margir búnir að svara en Jói Danner gaf sér tíma til að svara þeim og fær hann þakkir fyrir það :) Ég vona svo að aðrir sjómenn komi til með að geta séð á eftir nokkrum mínútum sem fara í að svara spurningunum. Vill einnig minna á að spjallið virkar enn þá svo ef þú vilt koma einhverju á framfæri þá er tækifæri þar.
20.02.2004
Fékk fína sendingu í dag, pakka fullan af harðfisk og fleiru góðgæti. Karnivalið er byrjaði í Einhaus í dag og maður gat séð fólk í búningum ganga um götur. Þetta minnir svolítið á hátíð á Höfn þar sem fólk á öllum aldri virðist taka þátt í þessum atburði. Fór í dag og bókaði skíðaferð til Frakklands 5. mars sem vonandi á eftir að heppanst vel. Bara að maður brjóti nú ekki eitthvað af beinum í brekkunum þar sem maður er nú ekkert of góður á bretti....
03.02.2004
Það hefur ansi lítið verið að gerast hérna inni á Einhausnum í langan tíma. Ástæðurnar nokkrar, þar á meðal skólinn kominn á fullt skrið að nýju og svo fékk ég góða heimsókn þegar Rúnarinn renndi sér hingað út í 5 daga. Hann getur þó ekki talist hafa verið heppinn með veður þar sem snjókoma og skítakuldi tóku á móti honum. En veðrið hefur nú batnað aftur og komið svona temmilegt vetrarveður eins og maður á von á hér í Einhaus. Þó svo að eitthvað sé nú meira að gera í skólanum vonast ég samt til þess að geta ritað eitthvað meira hérna en ég hef gert en það verður bara að koma í ljós hvernig það fer.
19.01.2004
Eru Hornfirðingar gersamlega að missa það ? Var að lesa í mogganum að fyrsti íshokkíleikurinn hafi verið spilaður heima í gær. Ekki nóg með það að menn hafi nú loksins spilað leik í þessari íþrótt heldur eru áform um að stofna skautafélag Hornafjarðar sem muni starfa í 2. deildum, listdansdeild og íshokkídeild. Ég hef verið að spá í því hvernig svona skautastarf á að ganga , á að vonast eftir köldum vetri eða á að senda iðkenndur til Reykjavíkur. Kannski að menn hafi heyrt af því að Kongóbúar ætli að fara hefja byggingu á stóru skautasvelli innandyra..............
18.01.2004
Það verður að segjast að helgin var heldur tíðindalítil hér í Einhaus eins og svo oft áður. Annars er frekar lítið að gerast hérna eins og er bæði í skólanum og svo sem annarsstaðar enda önnin rétt að skríða af stað. Það er þó skemmtilegt frá því að segja að Rúnar ætlar að koma hingað í lok janúar sem er ekkert annað en gott enda ekki oft sem maður fær heimsóknir að heiman. Heimsóknir á síðuna eru heldur ekki margar frekar en fyrri daginn og svo virðist sem þeir fáu sem hingað koma vilji ekki skrifa sig í gestabókina sem er synd því gaman væri að fá að vita hverjir villast hingað inn. Veðrið hefur verið hálf dapurt og segja má að það hafi rignt flest alla daga síðustu viku sem er nú ekkert alltof spennandi þegar maður fer um hjólandi.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli