mánudagur, mars 28, 2005

Jæja gleðilega Páska (ef einhver yfir höfuð les þetta, taktu þetta þá til þín). Síðustu dagar búnir að vera stórfínir hérna í Antverpen og páskaegg og annar munaður runnið ljúflega niður. Við Kristrún skelltum okkur í páskagöngu í gær, svona rétt til að kynnast okkar nánasta umhverfi. Þessi ganga tók okkur reyndar hátt í fjóra tíma enda mikið að skoða. Í göngunni fundum við eitt stk "listaverk" well allavega eitt stykki stensil, sem við fundum á einhverju húsi sem ég var að mynda. Mér fannst þetta hálf einkennilegur staður fyrir stensil þar sem húsið virtist autt, svo ég ákvað að gefa honum nýtt heimili. Eftir nokkra mínútna glímu við að taka hann niður tekst það loksins. Þegar ég sný honum svo við stendur " IF YOU FIND THIS AND YOU LIKE IT, IT'S YOURS" svo ekki stal ég honum. Það er reyndar dálítið gaman að finna svona, það kemur upp í manni lítill sjóræningi. Maður vill finna meira og ósjálfrátt fer maður að skima í alla króka og kima en í þetta skiptið var stensillinn það eina markverða sem við fundum. But anyway geðveikur stensill........

laugardagur, mars 05, 2005

Jæja það hlaut að koma að því að maður settist niður og ritaði eitthvað. Maður er búinn að vera ansi busy við að koma þessari íbúð í íbúðarhæft stand, kannski að maður hafi þó reyndar eytt óþarflega miklum tíma í það. Annars er bara allt fínt að frétta, búið að vera svolítið kalt og snjóað flesta daga í síðustu viku. Þó svo að það snjói verður maður voða lítið var við hann annað en að sjá hann í loftinu enda allt autt úti. Við Seton erum búnir að fara nokkra verslunarleiðangra í leit að ljósum, kaffivél og þessu sem maður verður að eiga. Í einni slíkri ferð sáum við bíl stopp á rauðu ljósi, kannski ekki svo merkilegt eða hvað. Bílstjórinn var reyndar fyrir utan bílinn að spreyja úr slökkvitæki undir húddið á bílnum þar sem nokkur reykur var. Við villtumst svo aðeins svo við þurftum að snúa við, þegar við komum að ljósunum aftur var eldurinn kominn upp úr húddinu og mann greyið gat ekkert gert.

Það er svo farið að styttast ansi mikið í að Kristrún komi í 3. vikna heimsókn, ekki amaleg heimsókn það. Hún kemur 13. og svo kemur mamma hennar 15. svo það verður gestkvæmt í Belgíu í næstu viku.