laugardagur, mars 05, 2005

Jæja það hlaut að koma að því að maður settist niður og ritaði eitthvað. Maður er búinn að vera ansi busy við að koma þessari íbúð í íbúðarhæft stand, kannski að maður hafi þó reyndar eytt óþarflega miklum tíma í það. Annars er bara allt fínt að frétta, búið að vera svolítið kalt og snjóað flesta daga í síðustu viku. Þó svo að það snjói verður maður voða lítið var við hann annað en að sjá hann í loftinu enda allt autt úti. Við Seton erum búnir að fara nokkra verslunarleiðangra í leit að ljósum, kaffivél og þessu sem maður verður að eiga. Í einni slíkri ferð sáum við bíl stopp á rauðu ljósi, kannski ekki svo merkilegt eða hvað. Bílstjórinn var reyndar fyrir utan bílinn að spreyja úr slökkvitæki undir húddið á bílnum þar sem nokkur reykur var. Við villtumst svo aðeins svo við þurftum að snúa við, þegar við komum að ljósunum aftur var eldurinn kominn upp úr húddinu og mann greyið gat ekkert gert.

Það er svo farið að styttast ansi mikið í að Kristrún komi í 3. vikna heimsókn, ekki amaleg heimsókn það. Hún kemur 13. og svo kemur mamma hennar 15. svo það verður gestkvæmt í Belgíu í næstu viku.

Engin ummæli: