Djöfull þoli ég ekki þessar ansk.... moskító flugur, var að fara að sofa í nótt þegar ég heyri í einni syngjandi við eyrað á mér. Ég stökk upp, kveikti ljósið og skimaði í kringum mig í einar 10 mínútur eða svo. Loksins kem ég auga á kvikyndið, stekk til og gríp næsta blað sem ég finn rúlla því upp og er tilbúinn að murka kvikyndið en nei nei það var á bak og burt. Ég dó þó ekki ráðalaus þar sem góður svefn er nú eitt það allra dýrmætasta, ég inn í næsta herbergi. Kem svo til baka vopnaður moskítofýludreifara, plögga honum snarlega inn og náði svo að sofa ágætlega eftir það. Ég vakna svo hálf eitthvað vankaður í morgun með stýflaðann nebba og alles, fór þá að spá í því hvort moskíturnar séu búnar að breyta mér eitthvað efitr öll þessi bit ? Kannski er maður að breytast í moskító

Við skulum rétt vona að ég sé ekki að breytast neitt í bráð end ekki árennilegur sem moskító. En allavega allavega allavega þá læt ég hér einn aulabrandar fylgja með, ég held svei mér þá að ég hafi andað of miklu af moskítófýlugufunum að mér til að láta mér detta svona vitleysa í hug. Eníhú hér kemur aulabrandarinn.
Góða nótt...............