sunnudagur, september 18, 2005

Þá er maður kominn til Handvörpu aftur!!
Nú er maður búinn að vera hérna í tæpar 2. vikur og íbúðin að verða komin í stand, reyndar svona smá hlutir eftir eins og að kaupa nýjan ísskáp þar sem rauða hvelfingin er ónýt.
Gaman að segja frá því að vegabréfið er fundið en mikið andsk.... var ég viss um að ég fyndi það ekki. Það kom svo í leitirnar í gær og viti menn það var inni í erminni á jakkanum mínum deisus, aldrei hefði manni dottið í hug að leita þar. Búinn að skipta um deild og er kominn í Activity aftur svo maður er bara eins og heima hjá sér enda þekkir maður flesta þarna.

Engin ummæli: