mánudagur, júlí 18, 2005

Við Kristrún fórum til að sjá Snoop Dogg í Egilshöll í gær, væntingarnar voru kannski ekkert of miklar eftir að hafa heyrt um tónleikana í Noregi. En andskotinn hafi það þetta voru geðveikir tónleikar og ekkert minna en það. Snúbbarinn var hreint magnaður klæddur í einhvern samfesting sem erfitt er að lýsa og svo með BLING BLING microphone í hönd.

Ég reyndi að ná myndum af Snúbbaranum en þetta er ein af þeim betri sem ég náði, flestar af myndunum voru ekki í fókus og þar eftir götunum. Reyndar tók ég eitthvað af video fælum líka en sándið á þeim er ekki upp á marga fiska þar sem bassinn var stilltur í botn svo það lá við að myndavélin hrisstist í sundur þegar hún var tekin upp

Engin ummæli: