föstudagur, júlí 08, 2005
Það er orðið ansi langt síðan að maður bloggaði síðast og kominn tími til að maður bæti úr því. Ég er búinn að vera heima í viku núna en svo virtist á tímabili að ég kæmist ekki heim á tilsettum tíma. Reyndar seinkaði mér um 1 dag vegna tafar á lestinni frá Antwerpen til Amsterdam, þetta kom þó ekki að sök þar sem ég gat nýtt miðann daginn eftir í staðinn án greiðslu. Það að komast heim án auka-greiðslu sýnir nú að Flugleiðir eru að standa sig gagnvart sinum viðskiptavinum og ekki orð um það meir. Á morgun stendur til að fara til Grindavíkur og spila 9 holur með strákunum, svo stendur til að grilla annað kvöld og fara svo eitthvað út á galeiðuna. Það er nú reyndar spurning um hvort að maður hafi eitthvað erindi á golfvöllinn þar sem maður hefur ekki snert á kylfu síðan í fyrra. Það er bara vonandi að strákarnir hafi ekkert batnað síðan í fyrra, þá ætti mér að vera óhætt. Ætli ég riti ekki eitthvað um golfið á morgun en þangað til ........ ble
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli