miðvikudagur, júlí 13, 2005

Þá er maður búinn að vera að vinna í rúma viku sem er barasta alveg ágætt. Það er reyndar eitt sem fer GEÐVEIKT í taugarnar á mér, það er þegar fólk arkar um verslunina og tætir allt upp eins svo það sé að leggja ljósleiðara um alla búð. Afhverju getur þetta helvítis pakk ekki gengið frá eftir sig, er til of mikils ætlast. Vonandi fer þessari útsölu að ljúka, þá hættir fólk kannski að rífa upp hverja hrúguna af bolum og gallabuxum í leit sinni að ódýrasta dótinu.

Það er annars merkilegt þegar fólk kemur í búðina í leit að "plain" gallabuxum þegar
það er í raun að biðja um það allra ódýrasta, ef þú ert einn af þessum hópi skaltu
reyna að koma út úr þér strax að þú viljir bara MJÖG ódýrar buxur. Hættu að fela þig
á bakvið "áttu einhverjar plain gallabuxur".

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ja eg var ekki buin ad fatta thetta