þriðjudagur, febrúar 28, 2006

Ég veit ekki hvort ég var búinn að nefna það hérna áður en fyrir síðasta presentation þegar ég skrapp í Civo til að kaupa eitthvað smáræði þá vildi ekki betur til en að einhver dúfu skratti skeit á mig fyrir utan skólann. Hvað er það eru dúfur bara einhverjir skíta skæruliðar, sitjandi fyrir manni með fullan búk af kúk, tilbúnar að leysa. Það var svo þegar ég rakst á þessa mynd að mér varð ljóst að ef dúfa kúkar á þig þá er það sko engin tilviljun....

þriðjudagur, febrúar 21, 2006

Ekki mikið að gerast í Handvörpu þessa stundina, reyndi að ganga frá tryggingunum en það virðist einhverra hluta vegna taka lengri tíma en ég hélt. Fór í bankann klukkan 9 í morgun með vasana troðfulla af pappírum í von um að þetta myndi nú ganga í gegn í dag. Eftir að hafa talað við eitthvað möppudýr var það eina sem vantaði var yfirlýsing frá VÍS um viðskipti mín þar, s.s eitt fax sem átti að skila sér í hús þá og þegar. Ég fór því heim með bros á vör enda hafði möppudýrið sagt að það myndi hafa samband við mig um leið og faxið kæmi. Þegar ég kom heim fékk ég þær fregnir að faxið hafi farið af stað en það var ekki alveg ljóst hvort það hefði náð að komast á áfangastað. Ég hugsaði með mér að það hlyti nú að vera að það skilaði sér og möppudýrið myndi hringja í mig másandi þá og þegar, dagurinn leið svo án þess að möppudýrið hefði samband. Þetta þýðir að klukkan níu í fyrramálið þarf ég að arka aftur í bankann og leita svara, vona bara að þetta verði ekki eitthvað djöfullsins vesen og þeir komi með eitthvað eins og "öööö þú þarft að vera með belgískt ökuskírteini". Ég hef reyndar ekki miklar áhyggjur af því að þetta eigi eftir að verða eitthvað vandamál.
Ég er með höfuðverk í augnablikinu sem er reyndar svolítið ömurlegt þar sem ég fæ sjladan eða aldrei höfuðverk, kannski er gas ofninn að drepa okkur Uri hægt og rólega. Well ætli ég láti þetta ekki nægja í bili...... tot laater jonges

sunnudagur, febrúar 19, 2006

Það verður að segjast að ekki hefur nú mikið verið skrifað hérna inn á árinu og er kominn tími til að gera eitthvað í því. Svona það helsta sem á daga mína hefur drifið er að ég náði ekki síðasta Moduli sem var frekar súrt, var reyndar eitthvað ringlaður í lok annarinnar sem að er bara ekki nógu gott. Kennararnir sögðu að Jóninn vantaði í raun allt sem kallast communication sem ég veit að aðrir munu taka undir, þó töluðu þeir um að maður væri nú ekki alveg lost cause, heldur að kallinn þyrfti að vera virkari yfir lengri tíma. Það er víst ekki annað hægt en að vera sammála þessu þar sem margar hugmyndir eru ekki fullmótaðar fyrr en á síðustu metrunum. Svona fyrir þá sem hafa einhvern áhuga að sjá útkomuna ætla ég að setja inn nýjar myndir inn á myndasíðuna.