Ekki mikið að gerast í Handvörpu þessa stundina, reyndi að ganga frá tryggingunum en það virðist einhverra hluta vegna taka lengri tíma en ég hélt. Fór í bankann klukkan 9 í morgun með vasana troðfulla af pappírum í von um að þetta myndi nú ganga í gegn í dag. Eftir að hafa talað við eitthvað möppudýr var það eina sem vantaði var yfirlýsing frá VÍS um viðskipti mín þar, s.s eitt fax sem átti að skila sér í hús þá og þegar. Ég fór því heim með bros á vör enda hafði möppudýrið sagt að það myndi hafa samband við mig um leið og faxið kæmi. Þegar ég kom heim fékk ég þær fregnir að faxið hafi farið af stað en það var ekki alveg ljóst hvort það hefði náð að komast á áfangastað. Ég hugsaði með mér að það hlyti nú að vera að það skilaði sér og möppudýrið myndi hringja í mig másandi þá og þegar, dagurinn leið svo án þess að möppudýrið hefði samband. Þetta þýðir að klukkan níu í fyrramálið þarf ég að arka aftur í bankann og leita svara, vona bara að þetta verði ekki eitthvað djöfullsins vesen og þeir komi með eitthvað eins og "öööö þú þarft að vera með belgískt ökuskírteini". Ég hef reyndar ekki miklar áhyggjur af því að þetta eigi eftir að verða eitthvað vandamál.
Ég er með höfuðverk í augnablikinu sem er reyndar svolítið ömurlegt þar sem ég fæ sjladan eða aldrei höfuðverk, kannski er gas ofninn að drepa okkur Uri hægt og rólega. Well ætli ég láti þetta ekki nægja í bili...... tot laater jonges
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli