þriðjudagur, febrúar 27, 2007

Það er svo sannarlega kominn tími á eins og eitt blogg. Maður spyr sig hvort að bloggið sé ekki lengur inn? Kannski er maður með þessari færslu að opinbera að maður er ekki hipp og kúl.... Anyway, er að flytja frá Klapdorp á morgun eftir 2 skemmtileg ár hér í Antwerpen en núna skal haldið í internship eftir að hafa loksins náð 4. moduli. Meiningin er að reyna að komast að á eitthvert af hinum fjölmörgu design studios í New York. Til að byrja með að minnsta kosti held ég þó heim á leið til að eyða smá tíma með fjölskyldu og vinum, enda kominn tími til að maður staldri við lengur en 2. mánuði í einu á Íslandinu.
Sölvi var með presentation í dag fyrir útskriftina sína og það er mér sönn ánægja að tilkynna að kallinn náði og getur því haldið heim á leið með hönnunarstimpilinn á rassinum, til hamingju Sölvi ;)

Engin ummæli: