Er ekki kominn tími á að rita eitthvað inn á þessa blessuðu síðu eftir langt hlé. Það sem stendur upp úr er væntanlega að ég mun eyða sumrinu í stóra eplinu, fer út þann 5. og byrja svo starfsnám hjá Ron nokkrum Gilad þann 11. Þetta leggst ágætlega í mig þó svo að maður sé ekki kominn með neinn samastað ennþá, maður tekur þó bara nett kæruleysi á að þetta smelli allt saman á endanum.
Núna er aldeilis farið að styttast í að maður verði 0,5 sjötugur en það er rétt rúm vika í það, bara gaman að því enda ekki eins og maður hafi eitthvað þroskast þrátt fyrir að árin hrannist upp.... any way laater jonges.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli