þriðjudagur, júní 19, 2007

Hvar annarsstaðar en í NY sér maður litlar stelpur með slöngur í lófanum í subway vögnum, þetta var í fyrsta skipti sem ég hef því sem næst verið sleiktur af slöngu. Þar sem ég átti frí í vinnunni í dag þá fór ég í að redda loftkælingu þar sem ekki er líft inni í herberginu þessa dagana. Ég ligg bara upp í rúmi og finnst eins og ég sé að þiðna, svitinn hreinlega bogar af manni.
Á morgun má segja að hinn eiginlegi internship byrji þegar ég mæti í vinnuna á nýja staðnum, Kent Avenue 485 11211 Brooklyn.

Engin ummæli: