fimmtudagur, júlí 31, 2003

Þá er maður búinn að glápa á einn skammt af skjá einum. Í þessum skammti var myndbrot frá Höfn frá balli Gleðisveitar Ingólfs. Það var reyndar gaman að hlusta á umræðuna um hversu ofbeldishneigðir Hornfirðingar eru :) Hitt var þó öllu skemmtilegra en það var að sjá Svavarinn í hjartslætti. Svavarinn sem átti einstaka innkomu í Einhaus en hvarf svo án þess að jveðja kóng né prest. Svavarinn var að kynna ásamt einhverri tjellingu INNIPÚKAHÁTÍÐINA sem fram fer í Iðnó um verslunarmannahelgina, gott framtak það. Fékk miða á FOO FIGHTERS í dag svo maður er á leiðinni á tónleikana 26. ágúst.......

þriðjudagur, júlí 22, 2003

Eins og menn sjá sem hingað koma til að skoða hvað ég er að bralla þá hef ég lítið sem ekkert ritað síðan ég kom heim. Ég reikna ekki með því að setja mikið hérna inn í þennan tíma sem ég er hérna heima svo ég vona bara að sumarið verði öllum sem best.

mánudagur, júlí 14, 2003

Nú er maður loksins kominn heim í langþráð frí frá skólanum. Maður hefur nú alveg fengið lengra frí en núna þar sem þetta eru nú ekki nema 6 vikur. Skellti mér á driving range-ið með Rúnari og Sigurgeiri í kvöld og hamraði nokkra bolta. Það er vonandi að maður komist eitthvað í golf þegar maður fer austur. Það stendur til að renna austur í næstu viku, reyndar ekki alveg víst hversu lengi verður stoppað en Það verður nógu lengi svo maður geti heilsað upp á felsta sem maður þekkir. Reyndar vona ég að maður geti nú líka skellt sér í veiði þó ekki væri nema einu sinni. Ég gæti jafnvel skellt mér á völlinn til að sjá Sindramenn tapa eins og einum leik. Það er ótrúlegt hversu lélegir Sindramenn eru, þetta lið sem var í fyrstu deild virðist heillum horfið.

mánudagur, júlí 07, 2003

Það virðist vera ansi stutt síðan maður kom hingað til Einhaus en fyrsta árinu er að ljúka bara eftir eitt presentation fyrir utan lokapresentationið. Fékk að vita í dag að ég hefði náð listasögu og hollensku sem er bara hið besta mál. Það er kominn fiðringur í mann að komast loksins heim og hitta allt liðið heima enda ekki nema 5 dagar þangað til að ég kemn heim. Ég ætla að halda áfram að læra......

föstudagur, júlí 04, 2003

Jæja þá er bara kominn helgi og aðeins 8 dagar þangað til ég fer heim aftur. Á þessum 8 dögum á ég eftir að vera með 2. presentation sem ætti nú ekki að vera neitt rosalegt mál. Ég ætla að skella mér til Amster á morgun með David þar sem lítið annað er að gera þar sem Sölvester og Co. eru í Belgíu hjá Seton og Jullie. ÉG vona bara að allir skemmti sér vel á HUMARHÁTÍÐ og hagi sér skikkanlega.

þriðjudagur, júlí 01, 2003

Daddara nú er ég búinn með 4 fög og allt á farið á besta veg. Á morgun er svo ein presentation og svo 2 skrifleg próf á fimmtudaginn. Þessu lýkur svo öllu á þriðjudaginn í næstu viku þegar ég fer í síðasta presentationið. Ekki meira að segja í bili svo ég kveð frá Einhaus....