mánudagur, júlí 14, 2003

Nú er maður loksins kominn heim í langþráð frí frá skólanum. Maður hefur nú alveg fengið lengra frí en núna þar sem þetta eru nú ekki nema 6 vikur. Skellti mér á driving range-ið með Rúnari og Sigurgeiri í kvöld og hamraði nokkra bolta. Það er vonandi að maður komist eitthvað í golf þegar maður fer austur. Það stendur til að renna austur í næstu viku, reyndar ekki alveg víst hversu lengi verður stoppað en Það verður nógu lengi svo maður geti heilsað upp á felsta sem maður þekkir. Reyndar vona ég að maður geti nú líka skellt sér í veiði þó ekki væri nema einu sinni. Ég gæti jafnvel skellt mér á völlinn til að sjá Sindramenn tapa eins og einum leik. Það er ótrúlegt hversu lélegir Sindramenn eru, þetta lið sem var í fyrstu deild virðist heillum horfið.

Engin ummæli: