fimmtudagur, júlí 31, 2003

Þá er maður búinn að glápa á einn skammt af skjá einum. Í þessum skammti var myndbrot frá Höfn frá balli Gleðisveitar Ingólfs. Það var reyndar gaman að hlusta á umræðuna um hversu ofbeldishneigðir Hornfirðingar eru :) Hitt var þó öllu skemmtilegra en það var að sjá Svavarinn í hjartslætti. Svavarinn sem átti einstaka innkomu í Einhaus en hvarf svo án þess að jveðja kóng né prest. Svavarinn var að kynna ásamt einhverri tjellingu INNIPÚKAHÁTÍÐINA sem fram fer í Iðnó um verslunarmannahelgina, gott framtak það. Fékk miða á FOO FIGHTERS í dag svo maður er á leiðinni á tónleikana 26. ágúst.......

Engin ummæli: