miðvikudagur, nóvember 26, 2003
Fór upp í skóla klukkan 9 í morgun, átti ekki að fara í neinn tíma heldur þurfti ég að vinna aðeins í einu af verkefnunum sem ég á að skila í des. Kláraði verkefnið um 11 leitið svo ég ákvað að trítla í bankann og athuga hvort tjellingarnar þar gætu ekki kennt mér á internet-banka systemið hjá Rabobank. Í bankanum stóð ég og beið rólegur þangað til röðin var komin að mér. Ég kom mér beint að efninu og ekki stóð á þjónustulundinni í þetta skipti. Að athuguðu máli kom í ljós að eftir átti að stofna internet aðgang á kortið. Svo var rennt í gegnum hvað ætti að gera og svoleiðis, mér leið strax betur vitandi það að ÖLL mín bankaviðskipti færu nú fram á netinu. Netið ætti eftir að breyta lífi mínu til hins betra. Hollendingar eru nefnilega svolítið sér á báti í sambandi við bankaviðskipti eins og millifærslur. Hérna þarf maður að fara með einskonar ávísun í bankann og droppa henni í eitthvað hólf. Ef þessi aðferð er notuð tekur það 3. daga að ljúka millifærslunni. Svo menn hljóta að sjá að internet-bankaviðskipti eru greinilega það sem koma skal. Well tjellingin fer ítarlega í gegnum aðgerðirnar eina af annari og ég hlusta á af athygli. Þá segir hún nokkuð sem ég hélt fyrst að mér hefði misheyrst, hún sagði "allar millifærslur í netbanka taka 2. daga að ganga í gegn". Ég hugsaði með mér vá HEILL dagur sem sparast á netinu í staðin fyrir asnalegu ávísanirnar. Svo segir hún mér að hægt sér að fá flýtimeðferð sem taki aðeins EINN dag en það kosti aukalega 2,5 evrur og einnig sé hægt að láta hringja í þann sem á von á peningunum til að segja að peningarnir séu á leiðinni fyrir litlar 5 evrur. Ég fór út úr bankanum svolítið ringlaður yfir öllum þessum tíma sem það tekur að millifæra á netinu og fór að spá hvað gæti valdið þessu. Eftir miklar vangaveltur ákvað ég að þetta yrði sett í bunkan óútskýranleg hollenskt fyrirbrigði.
mánudagur, nóvember 24, 2003
Þá er maður búinn í skólanum þennan mánudaginn. Ég hef oft verið að spá í því hversu mikil skítalykt er í loftinu hérna í Einhaus. Oftast nær er svona nett skítalykt í loftinu kannski að þetta sé bara í nefinu á mér. En á leiðinni heim úr skólanum í dag fann ég þessa skemmtilegu FJÓSALYKT svo ekki verður um villst. Þetta er reyndar ekki í fyrsta skiptið sem fjósalyktin lætur á sér kræla hérna. Í tilefni þess að Einhaus angaði ekki af hreinni skítalykt voru nasavængirnir þandir til hins ýtrasta til að fanga þennan ilm. Ilmurinn ásamt því að halla aftur augunum sendi mann beint heim í sveitina og þvílíkur unaður. Það er eins gott að maður náði að njóta ilmsins í dag því á morgun verður væntanlega hin alræmda óútskýranlega skítalykt komin aftur sterkari en fyrr.
miðvikudagur, nóvember 19, 2003
Jæja þá er maður búinn að redda fluginu heim og væntanleg heimkoma verður 12. des. Flugleiðir eru eitthvað að misskilja þetta með verðið á fluginu, ég hefði komist heim fyrir 54. þús. kall með þeim en slefaði í 23. þús með ICELAND EXPRESS. Reyndar varð ég að kaupa miða héðan frá einhaus til London en sá kostnaður er svipaður og lestarfarið til Amster. Svo maður komist nú heim þann 12. þarf maður aðeins að spýta í lófana og klára öll þau verkefni sem liggja fyrir. Ég sé reyndar ekki fram á að það verði eitthvað vandamál en hver veit..............
miðvikudagur, nóvember 12, 2003
Daddara get ekki sofið svo maður nýtir sér þennan ansi skemmtilega miðil til að skrifa eitthvað sem enginn les. Það er annars lítið að gera í skólanum og maður er farinn að hugsa um jólafríið sem nálgast óðum. Það stendur til að koma heim í kringum 17. og fara út aftur í kringum 5. Maður eyðir náttúrulega jólunum fyrir austan eins og vanalega og ætli maður bæti ekki aðeins á sig sem fyrr. Well best að reyna að sofa eitthvað svo maður verði ekki alveg ónýtur á morgun.
Gerast áskrifandi að:
Ummæli (Atom)