mánudagur, nóvember 24, 2003
Þá er maður búinn í skólanum þennan mánudaginn. Ég hef oft verið að spá í því hversu mikil skítalykt er í loftinu hérna í Einhaus. Oftast nær er svona nett skítalykt í loftinu kannski að þetta sé bara í nefinu á mér. En á leiðinni heim úr skólanum í dag fann ég þessa skemmtilegu FJÓSALYKT svo ekki verður um villst. Þetta er reyndar ekki í fyrsta skiptið sem fjósalyktin lætur á sér kræla hérna. Í tilefni þess að Einhaus angaði ekki af hreinni skítalykt voru nasavængirnir þandir til hins ýtrasta til að fanga þennan ilm. Ilmurinn ásamt því að halla aftur augunum sendi mann beint heim í sveitina og þvílíkur unaður. Það er eins gott að maður náði að njóta ilmsins í dag því á morgun verður væntanlega hin alræmda óútskýranlega skítalykt komin aftur sterkari en fyrr.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli