Jæja þá er sumarfríið á enda eða svona allt að því. Núna er aðeins rúmur sólarhringur þangað til maður fer aftur út til Einhauss. Ég verð nú að viðurkenna að ég hefði ekkert á móti því að vera hérna á Íslandi frekar en maður verður víst að klára dæmið. Sumarið hérna heima var bara ansi gott og ekki hægt að biðja um meira þar sem sólin sleikti skyrhvíta Íslendinga.
Ég fór í eina MJÖG stutta heimsókn á Höfn í vikunni, fór austur á sunnudaginn og kom aftur í bæinn á mánudagskvöldið. Ég fór til að heimsækja ömmu þar sem mér láðist að gera það þegar ég var fyrir austan um verslunarmannahelgina, talandi um heimsóknir þá á ég enn þá eftir að fara til Hörpu og Kristínar en ég vona að ég nái að kíkja til þeirra í dag. Ég hef nú alltaf verið lélegur heimsækjari svo ég skil ekkert í þeim að heimsækja mig ekki þar sem væntanlega er jafn langt til mín og til þeirra (eða er það ekki ?).
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli