fimmtudagur, september 30, 2004

Ég verð að segja að öll umræða um jafnrétti er komin út í vitleysu. Hvernig má það vera að í hvert skipti sem kona sem er ein af umsækjendum fær ekki tiltekið starf þá "LEITI FÓLK RÉTTAR SÍNS". Reyndar eru það ekki bara konurnar heldur virðist þetta orðin einhverskonar leið til að fá bætur fyrir akkurat ekki neitt. Það er svolítið gaman að því að kona sem er jafnhæf eða hæfari á í raun að fá skipun í það embætti sem hún sækist eftir ef kynjahlutföll eru skökk. Eiga þá konur sem sækja kannski um einar kvenna RÉTT á því starfi sem um er sótt. Mér finnst ekkert eðlilegt við það ef að ein kona og 7 karlmenn sækja um sama starf að konan fái starfið einfaldlega vegna þess að hún er "jafn góð". Ég segi því við ykkur sem alltaf eruð vælandi yfir órétti "Hvernig væri nú að sækja um einhver störf sem þig gætuð fengið en ekki þau sem þið vitið að þið fáið ekki í von um bætur vegna þess!"
Lögmaður Hjördísar Hákonardóttur: Jafnréttislög brotin að nýju
Atli Gíslason hæstaréttarlögmaður, lögmaður Hjördísar Bjarkar Hákonardóttur dómstjóra, segir að Hjördís muni leita réttar síns af endurnýjuðum krafti í kjölfar þessarar embættisveitingar í Hæstarétti.
Atli sagði að með þessar embættisveitingu hefðu jafnréttislög verið brotin á Hjördísi í annað sinn.
"Jafnréttislögum er ætlað að jafna stöðu kynjanna og í Hæstarétti eru kynjahlutföllin skökk og meðan hún telst hæfari eða jafnhæf og Jón Steinar þá átti að skipa hana í embættið. Það segir hins vegar hvergi í lögum að það eigi að rétta hlut karllögmanna í Hæstarétti."

Morgunblaðið 30.09.2004

Engin ummæli: