Fátt er meira í umræðunni heima þessa stundina en þar aðgerðir SMÁÍS gegn stuldi og dreifingu á tónlist, kvikmyndum. Ég hef lesið ansi margt tengt þessu máli en það sem kemur mér spánskt fyrir sjónir er hvað netverjar spila sig heimska. Menn kenna nefnilega Skífunni og öðrum um ástandið en líta ekki í eigin barm til að sjá að það eru þeir sem eru að brjóta lög. Mér finnst það mjög eðlilegt að þeir aðilar sem standa að SMÁÍS reyni að vernda sína hagsmuni enda eru þeir í fullkomnum rétti til þess. Það á svo eftir að koma í ljós hvernig þetta mál fer fyrir dómi en það verður fróðlegt að fylgjast með framvindu mála. Svona að lokum læt ég fylgja með eitt af "FÓRNARLÖMBUNUM" hafði að segja um aðgerðirnar.
"Að lokum kæra fólk hvet ég ykkur til þess að SNIÐGANGA algjörlega allt og alla sem tengjast SMÁÍS (Samtök myndréttarhafa) , Samtóni, og Framleiðendafélaginu og sýna þessum 12 einstaklingum sem brotið var svo gróflega á, samkennd og stuðning í verki."
Samkvæmt þessu eru fórnarlömbin þeir sem eru að deila ógrynni af kvikmyndum, tónlist og öðru efni á netinu, hversu vitlaust getur fólk verið.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli