Ég veit að Hilmar Árnason frá Vaði Vatnsleysuströnd yrði ekki lengi að ganga að rjúpnastofninum dauðum ef hann fengi tækifæri til þess......
mánudagur, október 17, 2005
Fuglaflensan virðist vera að breyðast hratt út án þess að nokkuð fái stöðvað hana. Las einhversstaðar að hún væri væntanleg til Íslands næsta vor, þá fór ég að hugsa þarf ekki að drepa allan fiðurfénað eins og hann leggur sig ef þetta berst til landsins ? Ef svo er væri þá ekki ráð að hreinlega ganga berserksgang í rjúpnaveiðinni núna og eiga rjúpu í frystikistunni fyrir næstu jól líka. Get ekki séð að það skipti máli að murka þessi rjúpnagrey núna ef þau eiga hvort sem er eftir að deyja úr flensunni, well kannski er þetta alls ekki eins slæmt og maður heldur. En svona til vonar og vara væri ekki málið að koma upp rjúpna genabanka, þá gætum við fengið Kára til að klóna einhverjar þúsundir kvikynda þegar þetta fuglaflensu brjálæði er allt yfirstaðið.

Ég veit að Hilmar Árnason frá Vaði Vatnsleysuströnd yrði ekki lengi að ganga að rjúpnastofninum dauðum ef hann fengi tækifæri til þess......
Ég veit að Hilmar Árnason frá Vaði Vatnsleysuströnd yrði ekki lengi að ganga að rjúpnastofninum dauðum ef hann fengi tækifæri til þess......
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli