föstudagur, nóvember 25, 2005

Það er ekki gæfulegt veðrið hérna í Handvörpunni, snjókoma og kuldi. Vegna veðurs sem við heima á Íslandi myndum kall slyddu stöðvuðust allar lestarsamgöngur bæði í Hollandi og Belgíu. Jæja hvað er betra í svona veðri að skella sér á leiguna og taka eina ræmu, sem ég og svo gerði. Í þetta skiptið var valið einfalt, annað hvort Steven Segal eða fara tómhentur heim. Steven Segal varð fyrir valinu enda úrvalsleikari hér á ferð (ehemm). Myndin ber hið virðulega heiti "You die today"

Eftir að horfa á myndina þá var eitt atriði sem vakti kátínu í mínu litla hjarta, í lokasenu myndarinnar þá fleygir hann einum út um glugga. Það er kannski ekkert merkilegt við það, þar sem myndirnar hans Segal eru mest um að henda fólki út um glugga fyrir eða eftir að hann hefur limlest það. Ég set hérna inn það sem fyrir augu bar, kannski ekki merkilegt en eitthvað sem ætti að vera að koma í veg fyrir.




En nóg um að vera að fetta fingur út í mynd með SNILLINGNUM Steven Segal sem hefur brotið fleiri hendur og hnéskeljar en nokkur annar.

Engin ummæli: