sunnudagur, nóvember 20, 2005
Ég hef ekkert að segja en skrifa samt eitthvað þar sem ég hef ekki skrifað neitt í langan tíma. Fór út í nokkra bjóra með David í gær, fórum á einhvern jazz pub. Staðurinn var reyndar agnar smár og svoleiðis troðfullur af 40+ fólki sem var nú reyndar allt í lagi. Frá jazz barnum lá leið okkar á sjeniver barinn, settumst niður í einn kakóbolla og ég fékk mér grand með. David fór svo heim en ég hélt á Kids og spilaði pool langt fram eftir nóttu. Ég er núna að taka út fyrir þessa drykkju og get ekki sagt annað en það sé smá þynnka í gangi.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli