þriðjudagur, desember 27, 2005

Nú er ekki mikið eftir af árinu og áramótin eftir aðeins nokkra daga, eins og venjulega verður haldið upp á þessi tímamót. Í þetta skiptið virðist það verða glamúr-partí hjá Robbsternum og maður rétt vonar að þessi áramót verði ekki eins og svo mörg önnur, s.s algjör vonbrigði.

þriðjudagur, desember 20, 2005

Jæja þá er komið að fyrstu færslunni eftir að maður kom heim í jólafrí. Það leit vægast sagt illa út með að ég næði yfir höfuð vélinni heim síðastliðinn laugardag, svaf eins og svo oft áður yfir mig. Í staðinn fyrir að vakna hress og kátur klukkan 7 þá vaknaði ég klukkan 9 með andvælum. Jæja á meðan ég skoppaði í hringi af stressi fór ég í gegnum það í huganum hvað ég ætti nú eftir að gera hmm.... Reyndar ekki svo mikið nema hrúga draslinu betur í töskuna og reyna að renna fyrir, svo var pantaður leigubíll. Á þessari stundu var hjartslátturinn kominn langt yfir eðlileg mörk og svitinn farinn að boga af mér, áður en ég skellti í lás þá hennti ég ruslapokunum fram á gang og dreif mig niður í lyftunni. Leigubíllinn kom svo stuttu seinna, þar sem ég var alltof seinn ákvað ég að fara beint á Antwerpen Berchem stöðina í veikri von um að ná lestinni. Ég gerði mér grein fyrir því að þetta yrði spurning um einhverjar mínútur og leit á klukkuna ótt og títt á leiðinni. Svo var ég loksins kominn á áfangastað, nauh kallinn bara á tíma, tek á rás inn á stöðina með töskuna í eftirdragi, þeysi eftir ganginum og upp rúllustigann....... argh helvítis lestin farin og von mín um að komast heim virtist gufa upp. Hvað gera bændur nú hugsaði ég með mér og fór að leita að einhverju með upplýsingum um lestarferðir, kannski meira svona til að fullvissa mig um að ég væri í raun að missa af fluginu frekar en hitt. Eftir smá eftirgrennslan finn ég svo tímatöflu yfir lestarferðir og viti menn það var ekki öll nótt úti enn, ein lest sem gæti skilað mér á völlinn klukkan 11:45 sem var upplagt þar sem flugið var ekki fyrr en 13:20. Jæja fór og keypti miða og smá morgunmat áður en ég snéri á pallinn aftur. Lestin kom svo. reyndar 20 mínútum of seint en það skipti engu máli, ég var á leiðinni á völlinn... Ég kem svo á Skipphól klukkan 12, fer beint í innritun, þar er Hanna úr suðursveit í einhverri glímu við afgreiðslukonu sem vill fá einhvern helling af evrum fyrir yfirvigt. Ég klára mína innritun og fer svo í gegnum vegabréfsskoðun. Jæja þá var maður bara kominn inn í fríhöfnina með rúman klukkutíma til stefnu. Næsta mál var að fá þessar 40 evrur til baka fyrir duty free varninginn sem ég keypti í Einhaus. Ég ríf upp umslagið sem var með svona fallega teiknað kort aftan á sem virkaði nokkuð auðskiljanlegt. Ég af stað, kem svo að annari vegabréfsskoðun nema að þessi var fyrir þá sem voru á leiðinni út (hvað er það!!!!) Jæja áfram var för haldið og eftir að hafa spurt eins og 10 manns á leiðinni um leiðbeiningar fann ég þennan fokking bás. Svo kyrfilega falinn að það hálfa væri nóg, konan sem var að vinna stóð sig vel í því að ignora mig í nokkrar mínútur. Gengur svo að glerinu og spyr hvað ég vilji, ég ber upp erindi mitt og hún fer að skoða pappírana, nei heyrðu fer hún ekki að tala um að mig vanti einhvern pappír sem átti að vera með brottfararpassanum. Gat nú verið að hún ætlaði að hanka mig á þessu, málið var bara að ég fékk engan slíkann helvítis pappír. Ok hún samþykkir rökin fyrir þessu pappírsleysi og fer nú að grandskoða pappírana sem hún hafði í höndunum. Svo segir hún, þú getur ekki fengið duty free ef þú býrð í Belgíu, ég hváði við og sagðist vera með lögheimili á Íslandi en ekki Belgíu og þess vegna ætti ég rétt á þessu. Þessum viðskiptum lauk með því að hún gaf mér með semingi stimpill en sagði svo "I´ll remember you next time" eða eitthvað í þá áttina. Ég hafði sem sagt fengið stimpilinn svo ég gæti farið í bankann að fá þetta endurgreitt. Ég í bankann, beint í röðina, 40 evurnar greiddar út.... Málið var nú að koma sér til baka, ég þurfti náttúrulega að fara aftur í gegnum vegabréfsskoðun o0g í þetta skipti var líka leitað á mér. Ég verð að segja að ég mun aldrei nokkurntímann reyna að fá eitt né neitt endurgreitt þarna í Hollandi, þetta tók um það bil klukkutíma og alls ekki þess virði að standa í þessu stappi við einhverja helvítis Hollendinga.........

sunnudagur, desember 11, 2005

Best að byrja á því að segja frá ferðalagi mínu til Brussel í dag. Ég vaknaði um klukkan 7 í morgun þar sem ég ætlaði að fara ti Brussel til að hitta liðið úr activity. Í fyrstu ætlaði ég að taka lestina 7:40 en auðvitað var ég of seinn þannig að lestin klukkan 8:04 vað fyrir valinu. Samkvæmt áætlun átti sú lest að nægja mér svo ég gæti verið kominn á gistiheimilið þar sem liðið var um klukkan 9. Allt gengur eins og í sögu ég virðist hafa nægan tíma og ekkert stress, tek metro til að komast á tiltekinn stað. Þegar þangað er komið var ég eiginlega hálf viltur enda hafði ég ekki græna hvert skildi halda næst. Ég arka af stað og spyr fyrstu manneskju sem á vegi mínum varð um leiðbeiningar en auðvitað vissi hann ekkert í sína baun svo ég hélt áfram göngunni. Næsta stopp var á kaffihúsi en sama sagan enginn vissi neitt, nú var þetta orðið svolítið tæpt, kallinn orðinn aðeins seinn. Jæja ég út aftur og byrja að ganga eina af hliðargötunum, að lokum kem ég þar að gistiheimili, hmmmm gæti þetta verið það hugsaði ég með mér. Ég rýk inn og átta mig strax á því að þetta er ekki rétt gistiheimili en finnst ég samt hafa afrekað eitthvað, geng að afgreiðsluborðinu og spyr stúlkuna þar hvort hún viti hvar bla bla bla bla er. Hún lítur varla upp en réttir mér eitthvað kort og segir mér að ég sé staddur hérna og ...... Ég fer út og hugsa með mér að nú komi hinir ofur kortalesningar hæfileikar loksins til með að gera eitthvað gagn jeij. Jæja finn staðinn sem ég var á sný kortinu eftir öllum kúnstarinnar reglum og valla. Kallinn er með það alveg á hreinu hvert skal haldið. Ég svíf hálfpartinn enda er ég í rauninni kominn á staðinn nú þegar í huganum, jæja lífið var dásamlegt þessa stund. Eftir nokkurn spöl fer ég að skoða kortið betur og sé mér til mikillar undrunar að það vantar öll kennileiti á kortinu á þessa leið sem ég valdi. Djö..... kortalesningar hæfileikarnir virðast aðeins hafa verið hugarburður minn og ég er aftur algjörlega lost. Jæja ég tek ákvörðun um að taka annan túrista á þetta og geng upp að manni og spyr hann til vegar, hann virðist eitthvað betur að sér í þessu hverfi en sá fyrsti, ég næ því nokkurnverginn hvert ég skuli fara þrátt fyrir að hann segði "ruddu duudd frada sedde middi" allavega hann talaði bara frönsku. Ég af stað til baka og einhvernveginn rambaði ég nú í rétta átt og fimm mínútum síðar eða svo þá fann ég gistiheimilið. En núna var klukkan orðin hálf tíu og allir á bak og burt, ég hugsa með mér að ég geti nú komist að því hvað þessir andskotar ætluðu að gera yfir daginn svo ég fer í afgreiðsluna. Neibbs ekkert er vitað um háleynilega för activity um borgina og til þess að auka á alla þessa leynd var ekkert númer skilið eftir. Hah, nú var orðið ljóst að Jóninn var einn í Brussel, ég hugsaði með mér að fyrst að ég væri kominn myndi ég reyna að gera það besta úr þessu sem komið var, ég myndi að minnsta kosti rölta um borgina og fylla lungun af mengun og menningu. Metro var tekin aftur á central station, nú var ég orðinn hálf soltinn og hugsaði með mér að Mc Donalds kunningi minn gæti nú væntanlega gert eitthvað í málinu. Áður en ég vissi var ég sestur niður á Makkanum með kaffi, appelsínusafa og amerískar pönnukökur þetta gerist hreinlega ekki betra. Pönnukökurnar runnu ljúflega niður svo og appelsínusafinn, sömu sögu er reyndar ekki hægt að segja um kaffið, eftir fyrsta sopann leið mér eins og ég væri að kæla hraunmola í munninum á mér, þvílíkur hiti. Jæja smá brunninn á tungunni en enginn varanlegur skaði, þá var bara að drífa sig af stað í leit að menningu. Þar sem ég hafði nú komið til Brussel einu sinni áður þá hafði ég smá tilfinningu fyrir því hvert skildi haldið en þá byrjaði það maður. Magaverkru dauðans, mér leið eins og ég væri kominn með hríðir og ekki leið á löngu fyrr en ég fer að reka svona rosalega við, á þessum tímapunkti reynadi ég að halda mig við þröngar hliðargötur þar sem ég gat leyst út án þess að hræða einhvern. Mér leið strax orðið aðeins betur, ég andaði léttar en fann þá að ég var alvarlega að pissa á mig. Engin kaffihús í augsýn og málið virtist vonlaust. Var ég virkilega að fara að pissa á mig í Brussel ? Hvað næst, ég var farinn að örvænta þegar ég sé þetta fallega rjóður sem hreinlega kallaði á mig "pissaðu hér", vá hvað það var gott að pissa, öll veraldleg vandamál virtust svo léttvæg í þessar 2 mínútur sem ég pissaði. Ég hneppti buxurnar upp og hugðist fara en finn þá að ég stíg í eitthvað mjúkt, það fyrsta sem ég hugsaði var "shit ég er búinn að stíga í eitthvað ógeð", viti menn ég hafði rétt fyrir mér þetta var shit, greinilegt að þetta rjóður leggur það í vana sinn að kalla fólk til sín til að losa út. Þvílíkur viðbjóður, skórinn allur út í skít, hvað er það !!!!! Tíu mínútum seinna og sirka 10 kílóum af grasi og laufblöðum var skórinn orðinn hreinn.....i. Nú var kominn tími á smá mennignu, Jóninn búinn að spræna og tilbúinn í allt. Ég ákvað að menningartankurinn skyldi fylltur í þetta skiptið með sýningu á verkum Panamarenko.

Sýningin var í rauninni mun skemmtilegri en ég bjóst við, verkin eru svona í anda Da Vinci, allskonar fyndnar hugmyndir um bíla, kafbáta og einhvernskonar flug tól. Eftir sýninguna fannst mér vera kominn tími til að fara heim svo ég var ekkert að velta því fyrir mér lengur heldur tók lestina til baka til Handvörpu.
ps. fyrir þá sem langar að forvitnast um Panamarenko þá er hægt að byrja hérna

föstudagur, desember 09, 2005

Ég er farinn að halda að útlendingar í Design Academy Eindhoven séu bara upp á punt og sem punt eigi þeir ekkert erindi í jólafrí enda sjaldan skreytt eins mikið og akkurat um jólin. Ég var í tíma í dag það sem mér varð ljóst að snillingunum sem sjá nú um að skipuleggja allt þetta batterí datt það snjallræði í hug að nýta nú vel tímann fram að jólum, þannig að þetta árið er síðasti tíminn á Þorláksmessu. Hvernig dettur þessu fólki í hug að einhver af þeim útlendingum, sem eru nú ófáir hafi nú fyrir því að mæta, ég get ekki séð að þetta sé til neins annars en að hafa eitthvað til að rífast yfir þegar helv..... útlendingarnir snúa til baka úr jólafríi feitir og pattaralegir. Ég sem hugsaði með mér að þetta árið myndi ég nú spila þetta safe og fljúga ekki heim fyrr en 17. des en auðvitað var það hreinlega ekki nóg í þetta skiptið að minnsta kosti. Reyndar sagði einn kennarinn að dagatalið hafi hreinlega ekki litið nógu vel út þetta árið, ja well ég stefni samt að því að vera einn af þessum feitu og pattaralegu sem verða skammaðir fyrir fjarveru í 19 - 23 des....... It has to be said that this is to high carried shame....

miðvikudagur, desember 07, 2005

Ég ætla að byrja þennan póst á því að segja "ef þú ætlar að bræða sykur á pönnu skaltu ekki víkja frá henni eitt andartak". Best að ég útskýri það aðeins nánar sem gerðist í dag, ég var að bræða sykur sem ég ætlaði svo að setja í mót fyrir eitt af verkefnunum fyrir comp-ass.

Svona fyrir ykkur sem ekki hafa séð brunninn sykur þá er það basically svona, eins og heavy afro. Ég hefði aldrei getað ímyndað mér eldinn sem kraumaði í sykrinum en sem betur fer náði ég að fara með þetta inn á bað til að slökkva í. Reyndar var baðið ekki fyrsti kostur í stöðunni þar sem ég fór með bálið að eldhúsvaskinum fyrst en eldurinn var of mikill svo ég kæmi þessu vandræðalaust í vaskinn. Sem betur fór gerðist nú ekkert alvarlegt (í þetta skiptið) en ég held að mínir sykurbræðslu dagar séu upp taldir að sinni að minnsta kosti. Jæja best að drulla sér í rúmið enda skóli á morgun og alles.