sunnudagur, október 01, 2006

Það kom heljarinnar haglél í dag, ég hélt að þetta væri bara smá úrhelli en hamagangurinn og lætin sem fylgdu þessu voru ógurleg. Ég hljóp inn og náði í myndavélina til að þetta væri nú til á mynd. Kannski var þetta ekki eins svakalegt og manni fannst þetta vera á meðan á þessu stóð, hvað um það fólk verður bara að hafa dína skoðun á þessu máli.


Séð út á götu




Það er kannski ekki alveg að marka stærðina hérna þar sem haglélið var byrjað að bráðna!

þriðjudagur, september 19, 2006

Verkefni annarinnar eru Robotar og einhver gadget fyrir arid 2020. Hljomar ekkert svo illa er thad? Thad er heldur tomlegt i Handvorpu thessa stundina enda vantar sarlega Solvester sem tekur svo sannarlega sinn tima i ad koma ser ut til ad halda afram med utskriftina sina. Er buinn ad vera ad spa hvert eg gaeti farid i internship og thad hefur akkurat ekkert poppad upp i hugann, kannski ad eg fari i internship hja sjalfum mer eins og einn onefndur nemandi gerdi herna um arid.

föstudagur, júní 16, 2006

Í kvöld var önnur tískusýningin af þremur, kallinn er bara að taka framförum. Stressið var eitthvað minna í þetta skiptið og raun bara gaman að þessu. Kannski að maður ætti að skella sér til Rússlands og láta strekkja mann upp í 190, + að missa eins og 10-20 kíló og kannski láta græða smá hár á skallann fyrir afganginn. Er reyndar ekkert viss um að ég myndi fíla að vera Jón version 2.0. Síðasta sýning á morgun ásamt tilheyrandi húllum hæi svo ég giska á að það verði ekkert ritað neitt hér fyrr en í fyrsta lagi á sunnudaginn.
Svona í lokin þá er ég að sýna fyrir Helenu Lumelsky ef einhver hefur áhuga....

fimmtudagur, júní 15, 2006

Jæja þá er fyrsta sýningin að baki og segja má að ég hafi komist nokkuð klakklaust frá henni. Ég hef reyndar örugglega litið út eins og albínói í þessum baige leðurbuxum hahaha, reyndar voru fötin hennar Helen mjög flott nema kannski það sem ég var í sem rann all saman í eitt. Whatever, kem sterkur inn á morgun.
Jæja þá er best að skrifa smá módel blogg haha. Eins og kannski sumir vita þá er Jóninn að fara Zoolanderast í útskriftarsýningu hérna í Handvörpu. Sýningin kemur til með að vera í dag, ámorgun og svo síðasta sýning á laugardaginn. Ég væri nú reyndar ekki að þessu nema útaf því að nágranna minn vantaði tilfinnanlega einhvern til að hjálpa til. Fór á æfingu í gær, svona til þess að menn vissu hvað þeir ættu að gera þegar þeir kæmu á sviðið. Svo núna á eftir á eftir að koma endanlega í ljós hvort ég verð hluti af sýningunni eða bara einhver fitubolla sem kemst ekki í fötin sem hún á að sýna..... Later dudes

fimmtudagur, maí 18, 2006

Fuck Eurovision
After watching eurovision tonight I have to say that eurovision doesn´t seem to know what talent is. Going through the finals was just a group of non talented fuckers except for Finland. Silvía Night had a fantastic performance, even though the eurotrash at the contest decided to act like the small minded fucks they are by booing before and after she performed. If it was not for Finland going through, this years contest would be like a tasteless diplay of barbie dolls, boybands and awfully recycled bunch of shitty songs. "Go Finland" in the finals and for the ones that booed at Silvía Night "fuck you all", you just booed the only thing that could actually have saved this fucking piece of shit contest. Anyway the joke is on you.... we are not laughing with you but at you. Be sure of that I´ll be watching on saturday, seeing all these talentless freaks perform, with a beer in hand to ease the pain when I´m rolling on the floor, laughing and gasping for air as the freakshow goes on.

föstudagur, maí 05, 2006

Það verður að segjast að internetið er stútfullt af fróðeik, þó svo að mikill meirihluti þess fróðleiks sé ansi vafasamur. Ég ætla að taka eitt dæmi um svona INTERNET fróðleik, vissir þú að leðurblökur beygja alltaf til.............. þegar þær fljúga út úr hellum. Ástæða þess að ég gef ekki upp í hvora áttina þær beygja er að sumir segja vinstri en aðrir hægri í svona vissir þú..... listum. Ég ákvað því að tékka þetta á inernetinu, þar fann ég upplýsingar þess efnis að þær fljúgi bara beint út úr heimkynnum sínum linkur
Ég tek það reyndar fram að allar þessar fullyrðingar eru á internetinu og eins og með flest sem þar er skal taka þessu öllu með fyrirvara. Internetið er nefnilega fullt af misvísandi, óábyrgum fullyrðingum sem reyndar í þessu tilfelli ætti ekki að skipta máli en ber þó að hafa í huga þegar fólk er í upplýsingaöflun á internetinu.
Tot laater.......

fimmtudagur, maí 04, 2006

Það verður að viðurkennast að kallinn er ekki búinn að vera að standa sig sem skildi á þessu bloggi. Ég ætla nú að bæta úr því og segja frá því sem á daga mína hefur drifið. Ég er sem stendur í viku fríi í skólanum og er ekki búinn að vera neitt sérstaklega duglegur, enda hver er tilgangurinn að vera í fríi ef maður er á útopnu. Fór loksins í það í dag að láta draga bílinn enda hann búinn að standa þar sem hann bilaði í 2. vikur (ok, ég veit að það er heldur langur tími). Ástæðan fyrir þessum langa tíma er að ég hef bara ekki haft neinn pening milli handanna í þessar 2. vikur og því lítið vit í því að fá einhvern til að draga hann og geta svo ekki borgað fyrir það. Svo að í morgun vaknaði ég eldsnemma (klukkan 10) og hringdi í fyrirtæki sem sér um að draga bíldruslur um borgina þvera og endilanga. Þegar ég var spurður hvar bíllinn væri þá var ég nú ekki með það alveg á hreinu(well bíllinn búinn að standa bilaður í 2. vikur einhvernstaðar í Borgerhout), any way þá segist ég ætla að fara þangað og hringja svo aftur. Svo ég trítla af stað í þessu líka blíðskapar veðri, 25 stiga hiti og sól. Eitthvað hefur sólin þó ofhitað heilabúið í mér þar sem ég fékk þá snilldar hugmynd að stytta mér leið, sem gerði það að verkum að í stað þess að vera kominn á áfangastað um 11, þá var ég kominn þangað 11:45. Meira helvítis short cuttið það, jæja ég kominn á staðinn og hringi þegar í gaurinn, hann segir mér svo að hann verði kominn á staðinn eftir 20 mín. Ekkert stórmál það enda yndislegt veður, svo líður tíminn, 12:15, 12:25, 12:35. Þegar klukkan er svo orðin 20 mín. í 1. þá hringi ég aftur, fæ þá að vita að þeir hefðu þurft að senda bíl í útkall fyrir lögregluna, bla, bla, bla og sagt að bíllinn verði kominn eftir að einn bílstjórinn yrði búinn í mat. Bíllinn kemur svo rúmelga eitt, gaurinn hendist út tekur af mér lyklana og áður en ég veit af er hann búinn að þeyta húddinu upp, tengja eitthvað start unit við geyminn og .......vrooooooooom, Mondeoinn malaði eins og köttur. Ég náttúrulega hálf dofinn yfir þessum tilburðum spyr hvað þetta kosti nú, hann segist þurfa að tala við bossinn. Eftir stutt samtal við bossinn lítur hann á mog og segir .............75 evrur....... WHAT, var hann að bjóða 75 evrur í bílinn eða var hann að tala um að þetta kostaði 75 evrur, ég var ekki alveg að átta mig á því hvort það væri enda hvort tveggja hljómaði jafn fáránlega í mínum eyrum. Jæja það þíðir nú lítið að vera að röfla eitthvað um þetta svo ég borgaði honum og keyrði svo burt á silfurvagninum. Núna er staðan sú að ég verð að splæsa í eitt stykki rafgeymi, sem ég geri væntanlega á morgun þar sem ég verð að koma bílnum í lag áður en skólinn byrjar aftur í næstu viku..........
Ég er að átta mig á því að færslan er orðin ansi löng og ég ekki beint að nenna að skrifa meira.

mánudagur, mars 13, 2006

Það er búið að vera ansi kalt í Handvörpu síðust vikur og mann er farið að lengja eftir vorinu. Annars er allt gott að frétta, skólinn kominn á fullt og verkefni annarinnar "Blender" og "Birdfeeder eða birdhouse". Ég er reyndar ekkert að skilja meininguna með þetta fugla verkefni, það er ekki eins og maður vilji vera vaðandi fuglaskít upp að öklum á þessum síðustu og verstu tímum. Það að þurfa að hanna eitthvað sem gæti fært fuglflensu allt að því inn í stofu til þín er ég ekki alveg að skilja. Það væri kannski ekki svo vitlaust að hann sérstaka hrífu til að raka saman fuglahræin í garðinum hjá þér eða fuglagildru sem væri hægt að fíra upp í þegar hún er orðin full. Kannski er maður að taka þetta of alvarlega og fuglaflensan ekki mikið meira en eitthvað fugla aids sem maður þarf ekkert að hafa áhyggjur af en við skulum nú sjá til með það.

þriðjudagur, febrúar 28, 2006

Ég veit ekki hvort ég var búinn að nefna það hérna áður en fyrir síðasta presentation þegar ég skrapp í Civo til að kaupa eitthvað smáræði þá vildi ekki betur til en að einhver dúfu skratti skeit á mig fyrir utan skólann. Hvað er það eru dúfur bara einhverjir skíta skæruliðar, sitjandi fyrir manni með fullan búk af kúk, tilbúnar að leysa. Það var svo þegar ég rakst á þessa mynd að mér varð ljóst að ef dúfa kúkar á þig þá er það sko engin tilviljun....

þriðjudagur, febrúar 21, 2006

Ekki mikið að gerast í Handvörpu þessa stundina, reyndi að ganga frá tryggingunum en það virðist einhverra hluta vegna taka lengri tíma en ég hélt. Fór í bankann klukkan 9 í morgun með vasana troðfulla af pappírum í von um að þetta myndi nú ganga í gegn í dag. Eftir að hafa talað við eitthvað möppudýr var það eina sem vantaði var yfirlýsing frá VÍS um viðskipti mín þar, s.s eitt fax sem átti að skila sér í hús þá og þegar. Ég fór því heim með bros á vör enda hafði möppudýrið sagt að það myndi hafa samband við mig um leið og faxið kæmi. Þegar ég kom heim fékk ég þær fregnir að faxið hafi farið af stað en það var ekki alveg ljóst hvort það hefði náð að komast á áfangastað. Ég hugsaði með mér að það hlyti nú að vera að það skilaði sér og möppudýrið myndi hringja í mig másandi þá og þegar, dagurinn leið svo án þess að möppudýrið hefði samband. Þetta þýðir að klukkan níu í fyrramálið þarf ég að arka aftur í bankann og leita svara, vona bara að þetta verði ekki eitthvað djöfullsins vesen og þeir komi með eitthvað eins og "öööö þú þarft að vera með belgískt ökuskírteini". Ég hef reyndar ekki miklar áhyggjur af því að þetta eigi eftir að verða eitthvað vandamál.
Ég er með höfuðverk í augnablikinu sem er reyndar svolítið ömurlegt þar sem ég fæ sjladan eða aldrei höfuðverk, kannski er gas ofninn að drepa okkur Uri hægt og rólega. Well ætli ég láti þetta ekki nægja í bili...... tot laater jonges

sunnudagur, febrúar 19, 2006

Það verður að segjast að ekki hefur nú mikið verið skrifað hérna inn á árinu og er kominn tími til að gera eitthvað í því. Svona það helsta sem á daga mína hefur drifið er að ég náði ekki síðasta Moduli sem var frekar súrt, var reyndar eitthvað ringlaður í lok annarinnar sem að er bara ekki nógu gott. Kennararnir sögðu að Jóninn vantaði í raun allt sem kallast communication sem ég veit að aðrir munu taka undir, þó töluðu þeir um að maður væri nú ekki alveg lost cause, heldur að kallinn þyrfti að vera virkari yfir lengri tíma. Það er víst ekki annað hægt en að vera sammála þessu þar sem margar hugmyndir eru ekki fullmótaðar fyrr en á síðustu metrunum. Svona fyrir þá sem hafa einhvern áhuga að sjá útkomuna ætla ég að setja inn nýjar myndir inn á myndasíðuna.

mánudagur, janúar 02, 2006

Áramótagleði - Nýárs ógleði
Þá eru áramótin liðin í þetta skipti, á gamlárskvöld fórum við Kristrún til Bobby´s í mat. Þar snæddum við létt þurrkaða nautasteik með grilluðum póteitum og grænmeti, sem betur fer bjó Bobby til bernaise til að bleyta kjötið upp í. Eftir matinn var svo sett á skaupið sem virtist vera óvenju stutt þetta árið, ekki liðnar nema eins og 15. mín frá því að við kveiktum á sjónvarpinu þar til að það var búið. Við héldum reyndar í einfeldni okkar að þetta væru svona plat lokaatriði en eftir smá eftirgrenslan kom í ljós að skaupið byrjaði ekki klukkan 11 eins og Bobby sagði heldur klukkan 10:25 eða eitthvað nálægt því. Eftir skaupið var svo rennt á Rauðarárstíginn og þaðan gengið í partí hjá Hildi við enda götunnar. Þegar við komum til Hildar byrjuðum við að puðra upp rakettunum sem vel flestar sprungu eða gáfu frá sér eitthvað væl, reyndar var það fremur stutt gaman enda 2 sprengióðir aðillar sem áttu þar hlut að máli. Eftir sprengingarnar voru tærnar orðnar létt kalnar svo ekki annað í stöðunni en að skella sér inn og byrja að drekka. Drykkjan stóð svo yfir til um klukkan 3. þegar öll strollan tók leigubíl á Rex til að taka þátt í áramótagleðinni með Tarantino. Það fór nú lítið fyrir Tarantino enda sá ég hann aðeins einu sinni, það fór nú reyndar enn þá minna fyrir áramótagleðinni og aulýsi ég hér með eftir einhverjum sem getur upplýst mig um hvar hún var. Þar sem áramótagleðin lét ekki sjá sig á Rex þá fórum við þaðan. Spurning um hvort áramótagleðinni hafi þótt nóg um verðlagið á drykkjum á Rex eins og mér og ákveðið að leita annað, hvað er það að selja 2. Captain í kók á 1700 kjell? Næsti staður sem áramótagleðileitin tók okkur var Pravda, ég get ekki sagt annað en lengi getur vont versnað, manni leið bara eins og maður væri kominn í húddið og vart íslenskumælandi veru að sjá, sem sagt stutt stopp á Pravda. Næst var það Prikið þar sem varð fyrir valinu enda engin röð og við gátum gengið rakleitt þar inn, þar var einhver slumma af liði en eftir einn drykk var kominn tími til að halda áfram leitinni. Áfram var gengið upp Laugarveginn en vonleysið farið að láta á sér kræla, með von í brjósti og smá eldsmóðstýru fórum við inn á Vegamót, Vegamót voru nefnilega fín í fyrra svo það gat allt eins verið að þar finndist áramótagleðin. Was I wrong there, ekkert nema eymdin uppmáluð og varla að sjá vott af neinni gleði þar og hvað þá hinni eftirsóttu áramótagleði. Nú var útlitið orðið ansi dökkt og maður eiginlega farinn að sætta sig við að áramótagleðina sé hreinlega ekki að finna þessi áramót. Það var þó einn staður eftir og var það Óliver, fyrir utan var smá röð sem gæti túlkað að þar væri eitthvað að gerast sem vert væri að skoða. Við skelltum okkur í röðina og það væri lygi ef maður segði að það hefði ekki verið nettur fiðringu í maganum á manni um að maður hefði fundið það sem leitað var að, kemur þá ekki í ljós að það kostaði 1500 kjell inn sem meira en við gátum látið bjóða okkur, enda klukkan rúmlega fimm. Það var því ljóst að áramótagleðin hafði einhvernveginn náð að hunsa okkur algjörlega þessi áramót, sem fékk mig til að spá aðeins í þessa áramótagleðis leit, eru fyrirheit og væntingar til áramótanna eitthvað sem maður hættir að trúa á svipað og var með jólasveininn. Verða öll áramót upp frá þessu ekki þess virði að klæða sig upp í jakkaföt, nýja skó, hreina brók og svo framvegis? Við skulum segja að væningarnar hafi að minnsta kosti náð sögulegu lágmarki svo ekki sé meira sagt, sem svo aftur á móti ætti að gera leitina að næstu áramótagleði auðveldari ef eitthvað er. Svona rétt að lokum gleðilegt nýtt ár......