föstudagur, júní 27, 2003
Jæja þá er maður kominn heim eftir fyrsta matið fyrir þessa önn. Það er gaman frá því að segja að ég náði svo ég er bara nokkuð sáttur þessa stundina. Það er ótrúlegt að þurfa annars að vera inni og vinna þegar úti er 30 stiga hiti og sól en maður er víst hérna til að læra eitthvað svo sólin verður að bíða þangað til ég fer heim til Íslands.
sunnudagur, júní 22, 2003
Það er nú ansi langt síðan maður bloggaði eitthvað að ráði annað en að segja að ekkert sé að frétta frá Einhaus. Fínn dagur í dag 30 stiga hiti en engin sól að ráði svo mann langaði ekkert frekar að vera úti en inni að læra. Það eru nefnilega innan við 3 vikur þangað til að skólinn er búinn. Vitandi að það væri ekki svo vitlaust að fara að bóka far heim skellti ég mér á vefinn til að finna hagstætt tilboð á einu stykki heimferð. Byrjaði að kíkja á Flugleiðir og þeir voru svo almennilegir að vilja aðeins fljúga með mig á saga class og fyrir lítil 84, þúsund. Þótti mér það nú rausnalega boðið en ákvað samt að kíkja á á Iceland Express. Ég renndi mér í gegnum kerfið og viti menn þeir áttu laust sæti 11. júlí og verðið ekkert til að kvarta yfir. Fyrir flugið heim með IE borgaði ég 70 pund og hana nú, reyndar verð ég að fljúga frá London en hverjum er ekki sama þegar það kostar einhverjar krónur að fljúga þangað beint héðan frá Einhaus. Nýja myndavélin er alveg að virka eins og þeir sem hingað koma til að lesa bloggið og kíkja á myndirnar. Ég á eflaust eftir að setja inn myndir reglulega svo menn séu nú ekki alltaf að skoða sama draslið aftur og aftur. Helginni alveg að ljúka svo að alvaran tekur aftur við í fyrramálið þegar ég fer í inro í living sem vonandi verður eitthvað varið í. Jæja þetta var nú slatti svo ég kveð í bili CIAO
laugardagur, júní 21, 2003
mánudagur, júní 16, 2003
Það er bara allt að verða vitlaust, 599 búnir að skoða síðuna svo stutt í tímamóta 600. innlitið. Skellti mér á kaffihús með Sölva og Halla í gær sem var bara helvíti fínt. Góður fílingur að sitja svona og sötra kaffi eins og maður hafi aldrei gert annað. Hallinn kom svo með hjól handa mér svo ég gæti nú komist í skólann. Þetta er þetta dýrindis racehjól Giant að gerð, blátt og hvítt að lit og lítur bara ágætlega út fyrir 15 til 20 ára gamalt hjól Hann minntist eitthvað á að það GÆTI verið að dekkin væru eitthvað léleg, ég gæti vel trúað að hann hafi haft rétt fyrir sér enda er ég nýkominn heim á felgunni lá við. Ætlaði reyndar að kíkja hvað svona dekk kosta en auðvitað var lokað í dag MÁNUDAG.
föstudagur, júní 13, 2003
Jæja einn svona frekar viðburðaríkur dagur að klárast. Dagurinn byrjaði ósköp venjulega, svaf út enda ekki skóli fyrr en klukkan hálf tvö. Var mættur aðeins fyrir tíman svo ég fór að líta eftir myndunum sem ég var að mála í skólanum í gær. Fann strax aðra þeirra en hin virtist ekki vera svo auðfundin enda var hana að finna í ruslinu ! Ég náttúrulega bölvaði þessum helvítis Hollensdingum sem voru í morguntímanum í sand og ösku. Eitthvað fór það fyrir brjóstið á kennaranum sem er eins og svo margir kennararnir hérna agaleg tilfinningavera. Hann fór svo eitthvað að tala um að aðeins það sem vel v´ri gert stæðist tímans tönn og eitthvað um að sá sem hefði hent þessu hefði ekki líkað myndin. Ég spurði hann þá hvort ég mætti koma í stúdíóið hans og henda því sem mér ekki líkaði. Jæja svo hófst tíminn og hann byrjaði að fletta einhverri bók og hélt áfram að blaðra um það að aðeins það besta ..... Mér fannst þetta hálf fyndið og talaði við Sölva á íslensku, það varð til þess að kennarinn missti það og taldi það vera argasta dónaskap að tala íslensku í tímanum. Jæja nú var tilfinningaveran komin úr jafnvægi og segir að ég verði að velja hvort ég fari úr tímanum eða hann. Það þurfti nú ekki mikinn snilling til að sjá að það væri betri kostur að draga sig í hlé svo tilfinningaveran ætti að eiga möguleika á að jafna sig aftur. Svo ég rölti út í sólina og trítlaði um bæinn á meðan tilfinningaveran tók sér víst 15 mín. pásu til að róa taugarnar. Ég skil ekki alveg hvað málið er er það ekki minn réttur að ákveða hvað af mínu drasli ég geymi og hvað endar í tunninni. Ég ætla svona í lokin að vona að tilfinningaveran nái sér fljótt og nýti helgina til að sleikja sárin sem rist voru á sál hennar. En ég ætlað líka að vona að fólk átti sig á því að láta mitt í friði framvegis, annars eiga margar tilfinningaverur eftir að hljóta sálarsár.
þriðjudagur, júní 10, 2003
Kraftaverkin gerast enn, ég sem er búinn að vera án tölvu í nokkra daga vegna þess að skjárinn datt út. Ég fór því til Kiko að athuga hvort ég gæti tengt tölvuna við skjáinn hjá honum og viti menn það kviknaði á skjánum. Svo núna er ég kominn í samband við umheiminn aftur eftir nokkra erfiða daga án sambands. Ég byrjaði að kíkja á horn.is, mbl.is, knattspyrnusíðurnar og svo Batman.is. Inni á batman var linkur á bloggið hjá einhverju vælupúka sem fékk ekki góða þjónustu á Pizza Hut að honum fannst. Alveg ótrúlegt hvað sumir eru uppteknir af því að vera kvartandi yfir smáhlutum. Talandi um smáhluti veðrið hérna í Einhaus er ekki eins og best verður á kosið, skýjað 30 stiga hiti og rakinn óbærilegur. Ég ætla rétt að vona að þetta verði ekki verra en þetta þar sem erfitt er að gera eitthvað í svona hita.
sunnudagur, júní 01, 2003
Það er gott til þess að vita að lítið sem ekkert breytist heima á Höfn miðað við þessa frétt sem ég sá á MBL.is
Héldu aðkomumönnum föngnum í fellihýsi
Fjórir heimamenn á Höfn í Hornafirði réðust inn í fellihýsi þriggja aðkomumanna á tjaldstæðinu á Höfn í morgun þar sem þeir unnu töluverð skemmdarverk auk þess sem þeir héldu aðkomumönnunum föngnum í einhvern tíma og gengu í skrokk á þeim. Málið er í rannsókn því vill lögregla ekki veita nánari upplýsingar um það að svo stöddu.
Verð að segja að ég hafði lúmskt gaman að lesa þessa frétt, strákar ekki láta þetta pakk sem ekki á heima á Höfn komast upp með eitthvað múður (eða þannig :) Héðan frá EINHAUS er annars það að frétta að hitinn er alveg að gera útaf við mig. Ég geri varla annað en að setja í þvottavélina því maður er að svitna eins og 2. fótboltlið bara við það að hjóla í skólann. Svo er það helv.... hitinn á nóttunni sem er leiðinlegastur, get ekki sofið ef það er of heitt sem er alveg ömurlegt. Ég vona bara að það kólni eitthvað næstu daga........
Héldu aðkomumönnum föngnum í fellihýsi
Fjórir heimamenn á Höfn í Hornafirði réðust inn í fellihýsi þriggja aðkomumanna á tjaldstæðinu á Höfn í morgun þar sem þeir unnu töluverð skemmdarverk auk þess sem þeir héldu aðkomumönnunum föngnum í einhvern tíma og gengu í skrokk á þeim. Málið er í rannsókn því vill lögregla ekki veita nánari upplýsingar um það að svo stöddu.
Verð að segja að ég hafði lúmskt gaman að lesa þessa frétt, strákar ekki láta þetta pakk sem ekki á heima á Höfn komast upp með eitthvað múður (eða þannig :) Héðan frá EINHAUS er annars það að frétta að hitinn er alveg að gera útaf við mig. Ég geri varla annað en að setja í þvottavélina því maður er að svitna eins og 2. fótboltlið bara við það að hjóla í skólann. Svo er það helv.... hitinn á nóttunni sem er leiðinlegastur, get ekki sofið ef það er of heitt sem er alveg ömurlegt. Ég vona bara að það kólni eitthvað næstu daga........
Gerast áskrifandi að:
Ummæli (Atom)