sunnudagur, júní 22, 2003

Það er nú ansi langt síðan maður bloggaði eitthvað að ráði annað en að segja að ekkert sé að frétta frá Einhaus. Fínn dagur í dag 30 stiga hiti en engin sól að ráði svo mann langaði ekkert frekar að vera úti en inni að læra. Það eru nefnilega innan við 3 vikur þangað til að skólinn er búinn. Vitandi að það væri ekki svo vitlaust að fara að bóka far heim skellti ég mér á vefinn til að finna hagstætt tilboð á einu stykki heimferð. Byrjaði að kíkja á Flugleiðir og þeir voru svo almennilegir að vilja aðeins fljúga með mig á saga class og fyrir lítil 84, þúsund. Þótti mér það nú rausnalega boðið en ákvað samt að kíkja á á Iceland Express. Ég renndi mér í gegnum kerfið og viti menn þeir áttu laust sæti 11. júlí og verðið ekkert til að kvarta yfir. Fyrir flugið heim með IE borgaði ég 70 pund og hana nú, reyndar verð ég að fljúga frá London en hverjum er ekki sama þegar það kostar einhverjar krónur að fljúga þangað beint héðan frá Einhaus. Nýja myndavélin er alveg að virka eins og þeir sem hingað koma til að lesa bloggið og kíkja á myndirnar. Ég á eflaust eftir að setja inn myndir reglulega svo menn séu nú ekki alltaf að skoða sama draslið aftur og aftur. Helginni alveg að ljúka svo að alvaran tekur aftur við í fyrramálið þegar ég fer í inro í living sem vonandi verður eitthvað varið í. Jæja þetta var nú slatti svo ég kveð í bili CIAO

Engin ummæli: