þriðjudagur, júní 10, 2003

Kraftaverkin gerast enn, ég sem er búinn að vera án tölvu í nokkra daga vegna þess að skjárinn datt út. Ég fór því til Kiko að athuga hvort ég gæti tengt tölvuna við skjáinn hjá honum og viti menn það kviknaði á skjánum. Svo núna er ég kominn í samband við umheiminn aftur eftir nokkra erfiða daga án sambands. Ég byrjaði að kíkja á horn.is, mbl.is, knattspyrnusíðurnar og svo Batman.is. Inni á batman var linkur á bloggið hjá einhverju vælupúka sem fékk ekki góða þjónustu á Pizza Hut að honum fannst. Alveg ótrúlegt hvað sumir eru uppteknir af því að vera kvartandi yfir smáhlutum. Talandi um smáhluti veðrið hérna í Einhaus er ekki eins og best verður á kosið, skýjað 30 stiga hiti og rakinn óbærilegur. Ég ætla rétt að vona að þetta verði ekki verra en þetta þar sem erfitt er að gera eitthvað í svona hita.

Engin ummæli: