þriðjudagur, janúar 13, 2004
Ég var að komast að því að skólinn hefði tekið þá ákvörðun að takmarka fjölda nemenda á verkstæði skólans. Sú ákvörðun var tekin að að eins 15 manns geti unnið í hverju á sama tíma, einnig var það ákveðið að enginn skyldi geta komið þar inn nema að haf undir höndum teikningar. Þessi takmörkun gerir það að verkum að menn verða að panta tíma á verkstæðinu með einhverjum fyrirvara. Reyndar get ég ekki séð að þetta komi til með að geta gengið þar sem fólk í skólanum er nú ekki alltaf að vinna hluti sem endanleg mynd er komin á. Það að geta ekki prófað sig áfram og gert skissumódel er út í hött. Einnig er verður gaman að sjá hvernig ástandið verður í lok annarinnar þegar þeir 600 nemendur skólans þurfa að klára sín verkefni með þessu fyrirkomulagi. Skólinn fær 3 drullukökur fyrir þetta eindæma klúður.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli