Maður hefur nú verið ansi latur upp á síðkastið að skrifa. Þar sem langt er liðið síðan ég henti einhverju inn ætla ég að skrifa um hluti sem eru kannski ekki nýskeðir.
Þegar ég var heima um jólin var í fréttum að einhver íslensk stelpa hefði orðið fyrir gúmmíkúlu Ísraelshers, hvern andskotann var hún að gera þarna að reyna að leika einhverja hetju.
Ég ætlaði að gera góð kaup á útsölu BT og kaupa þar DVD skrifara sem var á góðu verði eða um 7000 kallinn. Útsalan byrjaði klukkan 11 og ég mætti upp í skeifu þar sem skrifarinn fékkst aðeins þar. Þegar ég kom þangað var búðin næstum tóm svo ég hugsaði með mér að ég myndi nú örugglega næla mér í eins og einn skrifara. Ég vatt mér upp að einum afgreiðslumanninum sem þarna var og spurði hann hvort þeir ættu ekki skrifarann umtalaða, hann snýr sér að öðrum afgreðislumanni og spyr hvort hann sé til. Svarið lét ekki á sér standa "NEI HANN ER BÚINN" mér brá náttúrulega við þetta og fór fúll út. Þegar ég fór að hugsa meira um þetta fór mig að gruna að ekki hafi þessir brennarar verið mikið fleiri en 2. Svo BT fær 3 drullukökur fyrir að plata mig alla leið upp í skeifu fyrir ekkert.
Hérna í Einhaus er allt með kyrrum kjörum, skólinn að byrja og allt að byrja að malla. Kominn með verkefni annarinnar í hendurnar svo maður þarf að hefjast handa á næstu dögum......
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli