laugardagur, janúar 03, 2004

Jæja þá er það fyrsta blogg nýs árs. Áramótin fóru bara nokkuð vel fram að þessu sinni, þeim var fagnað ásamt nokkrum hræðum sem lögðu leið sína á Víkina. Kom aftur í bæinn í gær eftir að hafa legið í gotteríi og öðru góðgæti fyrir austan síðan 24.des. Dagurinn í dag búinn að vera ágætur svo sem, sótti sjónvarpið í viðgerð sem er nú varla fréttnæmt. Þegar ég kom á verkstæðið var allt ísilagt fyrir utan það, þegar ég skellti mér inn var það mitt fyrsta að nefna það við gaurinn í afgreiðslunni að mér þætti þetta nú ekki viðunandi að ekki væri búið að salta eða setja sand á svellið fyrir utan. Hann horfði á mig án þess að segja neitt enda komst hann ekki að því ég bætti því að ef ég dytti með sjónvarpið fyrir utan yrði það þeirra mál að greiða skemmdir ef einhverjar yrðu á sjónvarpinu. Eftir að hann komst svo loksins að sagði hann"þetta hefur nú verið í lagi hingað til" vel má það nú reyndar vera en er það einhver afsökun fyrir þessu ástandi? Well gaurinn spurði mig svo hvar bíllinn minn væri og ég sagði honum að hann væri við hliðina á verkstæðinu en ég ætlaði nú að koma með hann fyrir framan. Ég sótti nú grænu þrumuna og lagði fallega fyrir framan, opnaði afturhurðina og ætlaði að sækja sjónvarpið en viti menn vippar þá hinn óvenju fúli afgreiðslumaður sér út með sjónvarpið og henti því inn í bílinn. Mér þótti þetta vasklega gert svo ég sagði "þetta var vasklega gert" og þakkaði fyrir en fúli afgreiðslumaðurinn sagði ekki orð enda líklega löngu búinn að ákveða að ég væri algjört fífl og ekki væri orðum eyðandi í mig. Svona í lokin vill ég bara segja að þessir fúli anskoti sem vinnur á verkstæðinu hjá sjónvarpsmiðstöðinni fær tvær drullukökur fyrir þessa þjónustu.

Engin ummæli: