sunnudagur, október 31, 2004

Það er alltaf gaman að því þegar maður finnur eitthvað á netinu sem færir mann örlítið nær Íslandi á meðan maður er erlendis. Ég er búinn að skoða fréttirnar á stöð 2 á Vísi.is sem er hrein snilld til að fá fréttirnar beint í æð. Ein fréttin frá 30 okt. er samt eitthvað einkennileg eða kannski eitt af því sem fram kemur þar. Í fréttinni er verið að tala um skoðun á breiðþotu sem að tekur um 80 manns 8 daga að skoða eða um 5000 klst, fréttamaðurinn segir svo að það myndi taka einn mann 4 ár að gera það sama. Það er eitthvað sem ekki gengur upp í þessu dæmi, einn maður sem vinnur 8 tíma á dag í eitt ár vinnur 2080 tíma á ári sem sem þíðir að sami maður gæti klárað verkið á 28,8 mánuðum en ekki 48. Þarna er munur upp á 19,2 mánuði sem er nú varla innan skekkjumarka eða hvað. Úr einu í annað þá er nú ekki mikið að gerast í Einhaus þessa dagana og allt með kyrrum kjörum.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hvað ertu? Að læra stærðfræði!!..