Úff hvað maður hefur verið latur að skrifa eitthvað undanfarið. Ég fór til útlanda um helgina (Belgíu :) og gisti hjá Sölva og Steinunni. Við fórum út og spiluðum pool á föstudeginum með Seton-i, kvöld sem endaði á því að Sölvi og Seton voru orðnir ofurölvi svo ekki sé meira sagt. Vaknaði svo um 12 leitið á laugardeginum en gerði í raun ekkert, sat bara fyrir framan tölvuna og plataði svo Sölva og Seton til að fara út að kaupa pizzu. Strákarnir komu til baka með 4 pizzur sem runnu aðveldlega niður. Eftir þessa fínu máltíð horfðum við á The Terminal sem ekki allir voru sáttir við, reyndar voru þau öll að deyja úr leiðindum en við kláruðum nú samt að horfa á hana. Á sunnudeginum fórum við Sölvi til Huldu vegna þess að ég þurfti að taka myndir heima hjá henni vegna verkefnis sem ég er að vinna fyrir skólann. Hulda var svo ekki heima þegar við komum svo ég gat ekki tekið eins mikið af myndum og ég hefði viljað. En ég tók þó samt nógu margar enda þarf ég að fara þangað aftur til að taka upp vídeó næstu helgi. Ég kom svo aftur til Einhaus á mánudagsmorgun eftir vel heppnaða helgi í "útlöndum".
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
The Terminal!!! Hvað ertu, STELPA?
Skrifa ummæli