föstudagur, desember 31, 2004
Nú fer þessi jólageðveiki að taka enda þó fyrr hefði verið. Við skelltum okkur í Smáralindina til að skila bók sem ég gaf Kristrúnu í jólagjöf(Kristrún var nefnilega svolítið séð, hún var búin að segja mér að hana langaði Engla og Djöfla sem er eftir sama höfund og Davinci lykillinn. En til að vera viss um að geta lesið hana þá gaf hún mér hana í jólagjöf! En ég gaf henni náttúrulega þessa bók líka) Jæja við komum að skiptiborðinu og ég læt bókina af hendi og hún er skönnuð inn. Búðarkassinn kjammsar svo á strikamerkinu um stund og hrækir svo útúr sér verðinu "2990" mér dauðbrá enda hafði ég borgað 3690 krónur fyrir kvikyndið. Þetta misræmi var þó fljótt leiðrétt enda kallinn með kassakvittunina í rassvasanum :) En andskoti er þetta nú samt lélegt fyrir þá sem fengu bókina í jólagjöf og vita ekki betur og eru snuðaðir um 800 gullkrónur. Ég segi því svei svei svei og fær HAGkaup 2. miðlungsstórar drullukökur fyrir vikið. Eftir þessi viðskipti var svo verslað í matinn fyrir þessar 2990 + 800 gullkrónurnar sem reyndar dugðu ekki til svo ég varð að bæta 2010 gullkrónum í púkkið. Eftir þetta trítlaði ég í Jack & Jones til að athuga með skyrtu, þar fann ég líka þessa fínu skyrtu :) svo maður verði nú ekki eins og útigangsmaður í kvöld. Svo segja má að dagurinn hafi endað á góðu nótunum og mann farið að hlakka til kvöldsins. En allavega allavega allavega..... Gleðilegt nýtt ár allir (ok þið 3. sem skoðið bloggið)
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli