föstudagur, desember 03, 2004

Það mætti segja mér að þvottvél okkar meyboom búa sé að syngja sitt síðasta. Ég dreg þessa alyktun eftir að það tók rúma 12 TÍMA að þvo 2. sængurver og eitt koddaver. Ég þurfti reyndar að hjálpa vélinni aðeins þar sem hún virtist ekki halda áfram með prógrammið sjálf, hún væri sennilega enn þá að jappla á þvottinum ef ég hefði ekkert gert. Það er ágætt að maður er að flytja út enda alltaf major mál þegar á að kaupa eitthvað fyrir stóran hóp fólks. Það eru alltaf einhverjir sem neita að borga og segjast ekkert þurfa að nota þvottavél sem síðan kemur á daginn að er algjört kjaftæði, nískan er bara að fara með sumt fólk. Ú einu í annað þá eru íslenskar hljómsveitir með tónleika í Belgíu um helgina svo maður fer aftur til útlanda þessa helgi. Við Ninna ætlum að taka lestina á morgun og fara til Antwerpen og taka síðan aðra lest til Gent. Snillingarnir sem verða að spila þarna eru á meðal annars Múm og Trabant, ekki ónýtt að geta valið íslenskt meira að segja í útlöndum.
Ég komst að því að nágrönnum mínum er ekki treystandi, þegar ég fór fram að athuga með þvottinn (2. sænguver og 1. koddaver) sá ég mér til mikillar skelfingar að einn asíubúinn var að búta niður racing bike-ið mitt í varahluti. Ég náði að róa mig aðeins áður en ég benti honum góðfúslega á þá staðreynd. En hann er núna búinn að tjasla því saman aftur en ég á eftir að athuga hvort að hjólið virki nú eftir allt saman. Annars fær hann bara að gera við það..........

Engin ummæli: