sunnudagur, desember 05, 2004

Þá er maður kominn heim eftir ótrúlega tónleikaferð til Gent. Þetta voru ekki bara einhverjir tónleikar heldur voru þarna á ferð Apparat og Trabant og þvílík stemmning úfff. Þarna voru líka aðrar hljómsveitir og listamenn á borð við Múm (uppselt :( ) og svo var Mugison þarna á föstudeginum. Fyrri tónleikarnir voru með Apparat sem ég hafði ekki heyrt í áður, mikið djöfull voru þeir góðir og vídeó showið var einstaklega vel heppnað. Seinni tónleikarnir voru svo með Trabant og jesús minn ekki voru þeir til að valda manni vonbrigðum. Ragnar Kjartansson (aka. Rassi Prump) fór hreinlega á kostum á sviðinu og svo öllum að óvörum byrjaði hann að syngja stál og hnífur og ALLIR Íslendingarnir sungu hástöfum með, ótrúlegt móment sem maður gleymir seint. Það verður bara eitt sagt um þessa tónleika SNILLD!

Eftir tónleikana fórum við svo til Antwerpen þar sem við fengum okkur einn öl fyrir svefninn. Ég tók svo lestina til baka um hálf 3. leitið, á lestarstöðinni hitti ég einn af Íslendingunum(frænda Rúnars Snæland og maðurinn sem vann Rúnar á Norðurlandamótinu í júdó hérna um árið sem haldið var á Akureyri) sem var á tónleikunum. Hann sagði mér frá því að Dagur Kári Sigurðsson hafi reynt að drepa sig :) Þetta gerðist víst þegar menn voru á leiðinni heim á hótel Dagur spurði þá hvort hann ætti að setja lítið hljómborð sem hann hélt í augað á honum, svo henti hann því í áttina að honum en hitti ekki og datt hljómborðið í götuna og brotnaði lítillega. Svo örskömmu seinna þeytir hann því upp í loftið aftur og var nærri búinn að drepa gaurinn en hljómborðið smaug fram hjá hausnum á honum og smallaðist svo þegar það lent í götunni. Svona geta Íslendingar verið klikkaðir........... Hvað um það Apparat og Trabant takk fyrir mig.

Engin ummæli: