Djöfullinn ég held að ég sé búinn að týna helv..... veskinu mína, mikið andskoti hitti ég á góðan tíma til þess eða hitt þó heldur. Ég ætla að gefa þessu tíma þangað til á morgun, ef ég finn það ekki læt ég loka Visa kortinu og svona. Fyrir ykkur sem lásuð að ég ætlaði ekki að loka kortinu fyrr en á morgun og eruð byrjuð að slefa af hneykslun þá hringdi ég í Visa í dag til að athuga hvort kortið hefði verið notað, ekkert hefur gerst með þetta blessaða kort síðan á laugardaginn. Í öðrum fréttum er það helst að þegar ég ætlaði að fara að nota Racing hjólið mitt í gær þá virkaði það náttúrulega ekki svo ég lét Asíubúan gera við það svo ég gæti notað það. Maður lætur ekki traðka á draumum sínum um tour de france svo auðveldlega enda ekki ástæða til heldur.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli