Jæja þá er heldur betur farið að styttast í að maður yfirgefi Einhaus og reyndar Meyboom. Málið er nefnilega að ég er að fara að flytja inn í Ninnu hús, þar sem Ninnster er að flytja til Antwerpen. Þessi flutningur ætlar þó ekki að ganga eins vel og ég hefði viljað þar sem það er ekki heiglum hent að losa sig út úr Chello kóngulóarvefnum. Málið er nefnilega að þegar ég gerði samninginn í byrjun á síðasta ári hélt ég að ég væri að gera samning til eins árs. Svo kemur í ljós að fyrst ég skipti um þjónustuleið í sumar áður en ég fór heim og svo aftur þegar að ég kom út að ég var í raun að gera nýjan 1. árs samning. Hvað er það, það er ekki eins og ég hafi verið að taka internetið inn aftur. Svo núna þarf ég að borga samninginn upp í topp ef ég næ ekki að fá einhvern til að taka hann yfir hérna í meyboom. Helv..... hálfvitar..
En ef maður lítur framhjá öllu veseni þá er þó ljósið í myrkrinu að komast héðan úr útnára Einhaus og vera meira central. Maður getur eftir flutningin rölt í skólann og þarf ekki svo mikið að spá í veðri og vindum áður en haldið er af stað. Ég er byrjaður að pakka sem virðist bara ganga ágætlega og voandi næ ég að tæma herbergið áður en ég fer heim. Það er eitthvað heillandi við það að komast í nýtt umhverfi þegar ég kem heim úr jólafríinu :) En allt þetta vesen hlýtur að reddast, hef enga trú á öðru................. Over and out
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli