föstudagur, desember 10, 2004

Jæja hér kemur ein saga eða eigum við að segja örsaga og kannski meira ummæli. En allavega einhverntíma var Danni Prestssonur að tala um knattspyrnuhæfileika sína og segir "Ég knattspyrnumaður af guðs náð" þá segir Siggi Óla um hæl "Þú hefur nú fengið það í gegnum sambönd". Jæja ég get þó brosað út í annað þegar ég rifja þetta upp. Það er nú annað mál að Danni er löngu hættur í boltanum og kominn í lögfræði síðast þegar ég vissi. Spurning um hvort að strákurinn hafi skipt um lið. Ég glápti á eina ræmu í gær og fannst nú ekki mikið til hennar koma og varð fyrir miklum vonbrigðum. Í stuttu máli fjallar myndin um tjellingu sem drepur geimveru og fær bikar (vopn, verðlaun what ever) eins og glöggir kvikmyndaáhugamenn sjá þá er ég að tala um Alien Vs. Predator.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

þú ættir nú að vita að vera ekki að horfa á svona vittleysu.. Farðu frekar í labbitúr um borgina okkar Eindhoven... aaahahahahahaah... nei, horfðu frekar aftur á myndina..