fimmtudagur, september 22, 2005

Nú er maður óðum að nálgast það að geta talist með skráðum íbúum Antwerpen. Fór í gær til að láta skrá mig svo nú tekur við +/- mánuður þar til maður veit hvort maður telst gjaldgengur Handvarpari. Eftir að ég kom heim skoðaði ég gögnin sem ég fékk í hendur og sá þá að stúlkan hefur verið eitthvað utan við sig þar sem á einu bréfinu stóð að ég væri fæddur í Reykjavík á Írlandi, vona bara að þetta sé ekki eitthvað sem á eftir að vera eitthvað vandamál. Eftir að vera búinn að koma skráningunni á skrið fór ég svo í bankann til að stofna reikning sem var þægilega einfalt og engin vandkvæði þar. Núna er maður kominn heim til að fá sér eitthvað í gogginn og kikka á veraldarvefinn. Eins og svo oft áður þá dettur maður inn á einhverjar síður sem innihalda eitthvað sem kemur mannni skemmtilega á óvart. Í dag ráfaði ég inn á http://en.wikipedia.org/wiki/Dead_baby_jokes#Dead_body_jokes og sá þar brandara um Íslendinga sem ég var ekki alveg að ná en hann er á þessa leið.
Q: What was the dirtiest fight ever fought?
A: An Icelander and a seagull fighting on a beach over a rotten fish.
Getur vel verið að fólk skilji hann á mismunandi vegu svo punkturinn hér er að fólk veit þó allavega af okkur á skerinu í norðri.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

godur thessi..