miðvikudagur, mars 26, 2003
Jæja í dag leið þriðji dagurinn sem hitastigið er um 20 gráður :) Ekki slæmt miðað við veðrið heima sem er ekki upp á marga fiska núna. Í dag ver performance í Theatrical communication og það er skemmst frá því að segja að bekkurinn brilleraði og kennarinn gaf okkur 11 í einkunn. Einkennilegt að fá 11 en svo á eftir að dæma okkur út frá einstaklingsframtaki yfir önnina. Á morgun er ekkert evaluation en samt nóg að gera enda 2. slík á föstudaginn en með þeim þá líkur þessari önn fyrir utan loka-evaluation sem hver og einn sýnir allt það sem hann eða hún hefur gert yfir önnina. Bið að heilsa í bili......
þriðjudagur, mars 25, 2003
Það er gaman að segja frá því að vorið virðist vera að koma sér fyrir hérna í Einhaus eins og heima á Íslandi ehemm..... Í gær náði hitinn 22 gráðum og í dag slefaði hann hátt í 20 gráður. Annars er það að frétta að ég er að fara í theatrical communication á morgun, sem vonandi á eftir að ganga vel þrátt fyrir að hópurinn sé nú ekkert of vel æfður. Svo á föstudaginn verður presentation í textíl og respect, eftir það kemur hið langþráða 2. vikna páskafrí. Lauk einni presentation í dag en það var fyrir Van Der Hallen, hann mætti að venju alltof seint. Það er merkilegt að kennararnir í þessum skóla geti leyft sér að koma bara þegar þeim sýnist. Ekki má gleyma að ég fór í loka kynningu á IDENTIDY (hommadeildinni) í gær, deildin var ekkert að virka fyrir mig (segir manni þó eitthvað). Annars eru allir að missa það af stressi og djöfulskap og allar taugar strektar til hins ítrasta.
Ég var að lesa á Horn.is að skermarnir væru að láta í minni pokann fyrir stórvirkum vinnuvélum. Mér finnst persónulega að það hefði nú mátt leyfa eins og einum að standa þó ekki hefði meira verið. Ég held nefnilega að maður eigi eftir að sakna þess að sjá ekki þessu stórfenglegu mannvirki standa þarna sem minnisvarði um breytta tíma. Well kanski vita þeir sem öllu ráða betur en ég svo það þíðir víst lítið að vera að velta sér upp úr þessu.
Ég var að lesa á Horn.is að skermarnir væru að láta í minni pokann fyrir stórvirkum vinnuvélum. Mér finnst persónulega að það hefði nú mátt leyfa eins og einum að standa þó ekki hefði meira verið. Ég held nefnilega að maður eigi eftir að sakna þess að sjá ekki þessu stórfenglegu mannvirki standa þarna sem minnisvarði um breytta tíma. Well kanski vita þeir sem öllu ráða betur en ég svo það þíðir víst lítið að vera að velta sér upp úr þessu.
föstudagur, mars 21, 2003
Well erfiðir 10 dagar framundan og lítið verður annað gert en að vinna og vinna og vinna... Er sem stendur að gera squares fyrir Derks og ég sé það einhvern veginn ekki gerast að ég komist yfir það sem ég á eftir :( En ég vona bara það besta enda ekki hægt að gefast upp án þess að reyna. Þó að nóg sé eftir tók ég mér þó pásu til að sjá Liverpool drulla á sig á móti Celtic, eru engin takmörk fyrir því hvað þetta lið getur verið lélegt! Jæja nenni ekki að svekkja mig meira á því, þar sem ekki var við öðru að búast frá þessu liði. Sölvi hefur tekið að sér íslenskukennslu fyrir Ísraelana og virðist ganga bærilega þar sem þeir eru nú farnir að nota orðaforða sinn þegar þeir mæta manni. Orðaforðinn er þó ekki mikill en þeir hafa þó lært að segja feitabolla og rassgat ásamt öðrum þarflegum orðum sem nýtast þeim þegar og ef þeir leggja leið sína til Íslands.
mánudagur, mars 17, 2003
Vá maður hefur ekki hent neinu nýju hingað inn í langan tíma, ég veit að margir eiga eftir að lesa þetta innlegg með tárin í augunum yfir því að ég sé farinn að rita eitthvað aftur ( I wish ). Nú fer önninni að ljúka svo allt verður sett á fullt við að ljúka þeim verkefnum sem eftir eru. Svo kemur fríið sem væntanlega verður nýtt í að fara til Mílan að spóka sig á hönnunarsýningu þar. Ekki meira að segja að sinni.............................
sunnudagur, mars 09, 2003
Ný vika að hefjast og með henni ný verkefni. Þar sem nú eru aðeins 2. vikur eftir af önninni verður nóg að gera við að klára verkefni og þess háttar. Ég fór og sótti Kristrúnu til Amster í gær eins og ég talaði um. Svo virðist sem Kristrún hafi gleymt að skilja kuldann og rigninguna eftir heima vegna þess að í Amster í gær var skítakuldi og rigning. Ekki það veður sem maður óskar sér þegar maður ætlar að skoða útimarkaði, vegna rigningar og kulda var ekkert verslað heldur stefnan tekin til Einhauss. Þegar við komum svo hingað bað David mig um að koma að tala við sig og mér datt í hug að hann ætlaði að láta mig hafa 50 evrurnar sem ég lét hann hafa ef hann skildi hann sjá eitthvað sjónvarp í Emmaus. Ég rölti því niður og bjóst við að fá peninginn aftur en viti menn hann hafði keypt þetta fína helling af tommum Mitsubishi sjónvarp og fengið það sent heim fyrir þessar 50 evrur sem ég lét hann hafa. David er þegar um peninga er að ræða og það er hrein snilld að fylgjast með honum prútta niður verð á hlutum. Sjá hvernig hann þreytir sölumennina eins og góður laxveiðimaður þreytir lax þar til þeir gefa eftir. Við Kristrún ætlum að renna í IKEA á morgun og versla einhver ljós í herbergið mitt enda erfitt að sjá handa sinna skil eftir ad myrkra tekur. Getur verið svolítið erfitt ef maður þarf að vinna eitthvað heima sem þarfnast einhverrar nákvæmni.
föstudagur, mars 07, 2003
Ég get ekki sofnað svo ég ákvað að rita eitthvað hérna. Ég hef verið að spá í því afhverju svona margir Hollendingar hjóla án þess að hafa hendur á stýri ! Mér finnst þetta alltaf jafn heimskulegt, kannski þykir þetta eitthvað flott maður veit aldrei. Kannski krefst þetta áralangra æfinga og þykir jafnvel merki um visku að nota hendurnar ekki meira en þörf krefur. Mér dettur í hug einn maður á Hornafirði sem lék þetta eftir hér í den en það var Ásgeir Sigurðsson, frændi Sævars og Inga Stefáns. Hann gerði þetta með tilþrifum stundum þegar böll voru í Sindrabæ. Þá kom hann á blússandi ferð eftir Hafnarbrautinni og sleppti höndum, gott ef hann gerði þetta ekki bara Titanic style með hendur útréttar frá öxlum. Fögur sýn sem er allt að því ljóðræn í minningunni og maður heyrir hreinlega titillag Titanic í bakgrunninum. Þetta hef ég þó ekki séð neinn leika eftir hér í landi flatneskju og milljón hjóla, kannski er þetta einsdæmi í heiminum ! Ég er að fara til Amster eftir rétt rúma 3. tíma til að taka á móti Kristrúnu sem er að koma til að vera í 8 daga :) Planið er að kíkja á Waterlooplein áður en við komum aftur til Einhauss og kíkja á markaðinn þar. Það er gaman frá því að segja að síðast þegar ég var þar að gramsa í second-hand dóti þá fann ég FH búning. En bíðið við ekki bara 1 heldur 4 eða 5, það mætti halda að þeir FH-ingar hafi þurft að selja skyrturnar af baki sínu. Það gæti verið góð saga á bak við það hvernig þessar treyjur enduðu til sölu þarna, kannski að Albert hafi stolið þeim þegar hann var að FH-ast og komið þeim í verð í Amster ? En auðvitað eru þetta bara ómerkilegar vangaveltur sem eiga sér enga stoð í raunveruleikanum þar sem Spínó er nú maður góður og ekki þekktur fyrir annað. Annars gæti Maggi Páls hafa nappað þeim, jafnvel hafa FH-ingar gefið þær til rauðakrossins og þeir í stað þess að koma þeim til afríku selt þær til hæstbjóðanda á E-bay....... Æi þetta er ómerkileg og hreinlega leiðinlegt umræðuefni svo við skulum gleyma þessum treyjum. Ég er búinn að vera að skoða digital-myndavélar á netinu svona til að finna út hvað er gott og hvað er vont í þeim málum. En eins og svo oft þegar maður leitar á netinu verður maður bara meira og meira ringlaður og á endanum þá gefst maður upp og gefur öll kaup á tækju og tólum upp í bátinn. Ef þetta stoppar mann ekki þá er annað og það er að maður vill alltaf besta verðið því það er ekkert smá svekkjandi að kaupa eitthvað sem er svo auglýst á 50% lægra verði vikuna eftir að kaupin eiga sér stað. Ég mæli því með því ad ef fólk ætlar að fjárfesta í svona grip þá einfaldlega tali það við einhvern sem á slíkan grip og ef viðkomandi er ánægður með hann þá er bara að skella sér á 1. stk. Þegar kaupin hafa verið gerð skaltu forðast allar auglýsingar og allar búðir sem selja hlutinn í 1. ár. Þetta kemur í veg fyrir óþarfa táraflóð og leiðindi. Þetta ætla ég að láta nægja í bili og drulla mér í rúmið svo maður nái að sofa eitthvað, bið að heilsa í bili.
5
5
fimmtudagur, mars 06, 2003
Jæja þá er maður kominn með íslenskt letur og alles. Maður verður bara svolítið lengur að pikka þetta inn vegna þess að ég er ekki með íslenskt lyklaborð. Aggi lét loksins sjá sig á MSN-inu, hann talaði um að tölvan sín hefði verið biluð og svo núna hefur hann ekki íslenska stafi kallinn. Vonandi nær hann þó ad laga thað í náinni framtíð svo hann geti farið að tjá sig óhindrað aftur. Tölvu greyið mitt er aftur orðið eitthvað þreytt á stöðugri notkun svo ég verð líklegast að gefa henni eins og klukkutíma hvíld fyrir vikið og kannski jafnvel taka aðeins til í henni. Það er annars lítið að gerast í Einhaus þessa dagana enda held ég að flestir séu að jafna sig eftir kjötkveðjuhátíðina. Ég tók annars lítið eftir þessari hátíð enda fór ég vart út úr húsi á meðan henni stóð enda rólegur maður með afbrigðum.
miðvikudagur, mars 05, 2003
Dagurinn lidinn og ekki eftir nema ad skrída í baelid og fara ad sofa. Nú er ordid ansi stutt í ad Kristrún komi loksins í heimsókn, ekki nema 3 dagar. Svo ég hef ekki nema 3. daga til ad taka til svo thetta herbergi líti út fyrir ad hér búi manneskja en ekki eitthvad dyr. Erfitt verkefni en aetli madur reyni ekki ad koma thessu í lag fyrir laugardaginn. Onnur onnin alveg ad klárast ekki nema 3 vikur eftir en manni finnst madur samt vera nykominn aftur og madur finnur enn thá bragdid af jólamatnum (spurning hvort madur sé ad bursta nógu vel ?). Ég er búinn ad vera ad velta thví fyrir mér hvort ég eigi ad láta verda ad thví ad fjárfesta í digital cameru svo madur geti nú documentad thessa dvol hér betur. En allt kostar thetta nú peninga, málid med peninga er nefnilega ad thad er audveldara ad eyda theim en ad afla theirra. Talandi um peninga thá er ég farinn ad leita eftir einhverju ad gera thegar ég kem heim í sumar, mér thaetti vaent um ad einhver sem veit um EITT stk. starf í sumar hefdi samband. Ef menn eru eitthvad ad velta thví fyrir sér hvad ég vilji nú gera thá er ég tilbúinn ad vinna vid naestum ALLT innan " ". Ég hef svolítid verid ad spá í thví afhverju madur faer aldrei Emil frá neinu af thessum svokolludu vinum mínum HVAD ER THAD drullist nú til ad senda mér thó ekki vaeri nema 3. línur. Og thegar og ef thid sendid eitthvad ekki senda mér thá einhverjar fyndnar myndir eda einhverja brandara plís. Taki their thetta til sín sem eiga thad ! Jaeja bid ad heilsa í bili.............
mánudagur, mars 03, 2003
Ég skellti mér í baeinn í dag til ad kaupa hitt og thetta sem mig vantadi fyrir morgundaginn. Mér til mikillar furdu voru menn enn thá ad kjotkvedjuhátídast drekkandi bjór í heimskulegum búningum og klukkan var rétt rúmlega 3 ! Tharna voru ungir sem aldnir uppáklaeddir í mismunandi heimskulegum búningum ad skemmta sér saman. Mér finnst thad nú í lagi ad bornin séu sett í einhverja rottubúninga, en ad sjá fólk í kringum 50 ára aldurinn klaett eins og negrar frá 80's med afró og tilheyrandi er andskoti heimskulegt.
sunnudagur, mars 02, 2003
Liverpool 2 Manchester United o Muhahahahaha thvílík snilld, Manchester hvad!!!!!!!!!!! Hérna í Einhaus er núna 11 stiga hiti og rigning, hef reyndar heyrt ad thad rigni allan mars mánud hérna :( Aei aetli madur lifi thad ekki af. Ég hef en ekki ákvedid hvert ferdinni verdur heitid í apríl, hvort thad verdur Milan eda Reykjavík. Talandi meira um thennan leik sem var ádan thá sé ég Sigurgeir, Ornó og hina Man.Utd. gaejana fyrir mér med tárin í augunum segjandi "Vid topudum fyrir Liverpool" hahahaha frábaert en ég veit ad Heidar Austman hann stígur trylltann sigurdans sem sannur Púlari.
laugardagur, mars 01, 2003
Rotterdam er ekkert skemmtileg borg, thetta er mitt áit á thessari GEL SLEPJU GAEJA BORG. Thad var í rauninni gott ad koma aftur til Einhauss, reyndar í fyrsta skipti sem thad er gott. Nú er kominn tími kjotkvedjuhátídanna og Eindhoven tekur audvitad thátt í gedveikinni, fólk klaedir sig upp og fer á blindafyllerí. Minnir svolítid á thá stemmningu sem myndast á hátíd á Hofn thar sem ungir sem aldnir sameinast vid drykkju. En thad er nú samt svolítid skrytid ad vera med svona kjotkvedjuhátíd hérna reyndar er fínt vedur og 17 stiga hiti en thad vantar svona eitthvad frá Brasilíu.
Gerast áskrifandi að:
Ummæli (Atom)