þriðjudagur, mars 25, 2003

Það er gaman að segja frá því að vorið virðist vera að koma sér fyrir hérna í Einhaus eins og heima á Íslandi ehemm..... Í gær náði hitinn 22 gráðum og í dag slefaði hann hátt í 20 gráður. Annars er það að frétta að ég er að fara í theatrical communication á morgun, sem vonandi á eftir að ganga vel þrátt fyrir að hópurinn sé nú ekkert of vel æfður. Svo á föstudaginn verður presentation í textíl og respect, eftir það kemur hið langþráða 2. vikna páskafrí. Lauk einni presentation í dag en það var fyrir Van Der Hallen, hann mætti að venju alltof seint. Það er merkilegt að kennararnir í þessum skóla geti leyft sér að koma bara þegar þeim sýnist. Ekki má gleyma að ég fór í loka kynningu á IDENTIDY (hommadeildinni) í gær, deildin var ekkert að virka fyrir mig (segir manni þó eitthvað). Annars eru allir að missa það af stressi og djöfulskap og allar taugar strektar til hins ítrasta.
Ég var að lesa á Horn.is að skermarnir væru að láta í minni pokann fyrir stórvirkum vinnuvélum. Mér finnst persónulega að það hefði nú mátt leyfa eins og einum að standa þó ekki hefði meira verið. Ég held nefnilega að maður eigi eftir að sakna þess að sjá ekki þessu stórfenglegu mannvirki standa þarna sem minnisvarði um breytta tíma. Well kanski vita þeir sem öllu ráða betur en ég svo það þíðir víst lítið að vera að velta sér upp úr þessu.

Engin ummæli: