sunnudagur, mars 09, 2003
Ný vika að hefjast og með henni ný verkefni. Þar sem nú eru aðeins 2. vikur eftir af önninni verður nóg að gera við að klára verkefni og þess háttar. Ég fór og sótti Kristrúnu til Amster í gær eins og ég talaði um. Svo virðist sem Kristrún hafi gleymt að skilja kuldann og rigninguna eftir heima vegna þess að í Amster í gær var skítakuldi og rigning. Ekki það veður sem maður óskar sér þegar maður ætlar að skoða útimarkaði, vegna rigningar og kulda var ekkert verslað heldur stefnan tekin til Einhauss. Þegar við komum svo hingað bað David mig um að koma að tala við sig og mér datt í hug að hann ætlaði að láta mig hafa 50 evrurnar sem ég lét hann hafa ef hann skildi hann sjá eitthvað sjónvarp í Emmaus. Ég rölti því niður og bjóst við að fá peninginn aftur en viti menn hann hafði keypt þetta fína helling af tommum Mitsubishi sjónvarp og fengið það sent heim fyrir þessar 50 evrur sem ég lét hann hafa. David er þegar um peninga er að ræða og það er hrein snilld að fylgjast með honum prútta niður verð á hlutum. Sjá hvernig hann þreytir sölumennina eins og góður laxveiðimaður þreytir lax þar til þeir gefa eftir. Við Kristrún ætlum að renna í IKEA á morgun og versla einhver ljós í herbergið mitt enda erfitt að sjá handa sinna skil eftir ad myrkra tekur. Getur verið svolítið erfitt ef maður þarf að vinna eitthvað heima sem þarfnast einhverrar nákvæmni.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli